Úr gæsluvarðhaldi í fangelsi

Í framhaldi af niðurstöðu Landsréttar hefur konan hafið afplánun fangelsisvistar.
Í framhaldi af niðurstöðu Landsréttar hefur konan hafið afplánun fangelsisvistar. mbl.is/Eggert

Landsréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhald yfir konunni sem grunuð er um aðild að eldsvoða að Kirkjuvegi 18 á Selfossi í síðustu viku. Frá þessu er greint á vef lögreglunnar.

Konan kærði gæsluvarðhaldsúrskurð til Landsréttar og skilaði lögreglan á Suðurlandi rökstuðningi til Landsréttar í dag.

Í framhaldi af niðurstöðu Landsréttar hefur konan hafið afplánun fangelsisvistar sem hún átti óafplánaða vegna eldri dóms.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert