Húsráðandi sagður vera valdur að brunanum

Húsið sem brann á Selfossi.
Húsið sem brann á Selfossi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður, sem situr í gæsluvarðhaldi vegna eldsvoðans á Selfossi í lok síðasta mánaðar, er sagður hafa kveikt eldinn með því að bera eld að pizzakössum og gluggatjöldum í húsinu.

Kemur þetta fram í dómi Héraðsdóms Suðurlands þar sem kona, sem einnig var í húsinu, var úrskurðuð í gæsluvarðhald en Landsréttur felldi þann úrskurð úr gildi síðastliðinn þriðjudag. Úrskurður Landsréttar var birtur í gær.

Fram kemur í dómi héraðsdóms að karlmaðurinn, sem er húsráðandi, 53 ára að aldri, og konan sem er 45 ára gömul hafi verið handtekin á vettvangi eftir að þau hafi bæði haft á orði við lögreglumenn að maðurinn hefði kveikt í húsinu. Voru þau bæði í annarlegu ástandi. Fólkið var í kjölfarið fært á lögreglustöð og vistað í fangaklefa vegna ástands þess þar til hægt yrði að taka af því skýrslu.

Fram kemur að konan hafi við yfirheyrslur greint frá því að maðurinn hafi verið að kveikja í pizzakössum á stofugólfi á neðri hæð einbýlishússins við Kirkjuveg, þegar hún kom í húsið. Hún hafi skammað hann og hellt bjór yfir eldinn til þess að slökkva. Þá hafi annað þeirra sem lést í eldsvoðanum komið niður af efri hæðinni og átt í einhverjum orðaskiptum eða rifrildi við manninn en farið síðan aftur upp, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í  Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert