Mótmælir ummælum Önnu Kolbrúnar

Helgi ítrekar að þegar starfsmenn hefji störf á Alþingi sé …
Helgi ítrekar að þegar starfsmenn hefji störf á Alþingi sé brýnt fyrir þeim að sýna háttvísi í hvívetna. mbl.is//Ómar

Ummæli Önnu Kolbrúnar Árnadóttur um starfsfólk Alþingis eiga ekki við rök að styðjast og skrifstofustjóri Alþingis, Helgi Bernódusson, harmar að þau hafi verið látin falla. Hann vonar þau hafi verið mælt í ónærgætni, enda hafi þakklætis- og hrósyrði um starfsmennina fylgt.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Helga. Meðal þess sem Anna Kolbrún, þingmaður Miðflokksins, sagði var að starfsmennirnir væru allir mannlegir, og að þeir færu líka inn í þennan „kúltúr“ og að þarna væri eitthvað óáþreifanlegt.

„Í viðtali á Bylgjunni í gærmorgun sagði Anna Kolbrún Árnadóttir alþingismaður að á Alþingi væri mjög sérstakur kúltúr og mátti skilja af orðum hennar að starfsmenn Alþingis væru hluti af honum. Sem skrifstofustjóri Alþingis, og fyrirsvarsmaður starfsmanna þess, vil ég mótmæla þessum ummælum og að starfsmenn Alþingis séu á einn eða annan hátt dregnir inn í þá umræðu sem orðið hefur í fjölmiðlum um samtöl nokkurra þingmanna um samþingsmenn sína og fleiri á veitingahúsi í nágrenni þingsins.“

Helgi ítrekar að þegar starfsmenn hefji störf á Alþingi sé brýnt fyrir þeim að sýna háttvísi hvívetna og koma fram gagnvart þingmönnum og öðrum starfsmönnum af virðingu og nærgætni í orðum og allri framkomu.

„Ég man ekki til þess að undan starfsmönnum hafi verið kvartað að þessu leyti. Starfsmenn skrifstofu Alþingis leggja metnað sinn í að sinna störfum sínum af einlægni og fagmennsku.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert