Ráðinn prófessor við lagadeild HR

Bjarni Már Magnússon.
Bjarni Már Magnússon. Ljósmynd/Aðsend

Dr. Bjarni Már Magnússon hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Bjarni lauk doktorsprófi frá lagadeild Edinborgarháskóla árið 2013, LL.M.-gráðu í haf- og strandarétti frá lagadeild Miami-háskóla árið 2007 og öðlaðist lögmannsréttindi árið 2008, að því er segir í tilkynningu.

Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2005 og M.A.-gráðu í alþjóðasamskiptum frá sama skóla árið 2007.

Bjarni Már kennir og stundar rannsóknir á sviði þjóðaréttar (alþjóðalaga), einkum á sviði hafréttar. Hann er höfundur bókarinnar The Continental Shelf beyond 200 Nautical Miles: Delineation, Delimitation and Dispute Settlement (Brill/Nijhoff 2015). Auk þess hefur Bjarni birt greinar og bókakafla á alþjóðlegum og innlendum vettvangi.

Bjarni er forstöðumaður Alþjóða- og Evrópuréttarstofnunar HR. Á vorönn 2016 var hann gestafræðimaður við lagadeild Duke-háskóla sem Fulbright Arctic Initiative-fræðimaður. Á námstíma sínum í Edinborg var hann Chevening-styrkþegi og Cobb-Family-styrkþegi í Miami. Bjarni hefur sinnt ráðgjafastörfum fyrir innlend og erlend stjórnvöld sem og alþjóðastofnanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert