Biður Þorstein afsökunar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. mbl.is/Hari

Vilhjálmur Birgisson, for­maður Verka­lýðsfé­lags Akra­ness, biður Þorstein Víglundsson, varaformann Viðreisnar, afsökunar á Facebook og segir að það hafi aldrei verið ætlun hans að vega að æru látins manns.

Líkt og kom fram á mbl.is í gær sakaði Þorsteinn Vilhjálm um að vega að æru Víglundar Þorsteinssonar, föður Þorsteins, í færslu á Facebook á föstudag.

„Ég var að viðurkenna að þetta svar Þorsteins Víglundssonar til mín vekur hjá mér vissa undrun því mér finnst það afar langsótt að ég hafi verið að vega að æru látins föður hans með því að óska eftir svörum yfir því hvað lífeyrissjóðir launafólks hafi tapað miklu á 15,5 milljarða gjaldþroti BM Vallá en einungis 3,9 milljarðar fengust uppí lýstar kröfur.

Það var aldrei ætlun mín að vega að æru látins manns og hafi Þorsteinn tekið því svo bið ég hann að sjálfsögðu afsökunar á því enda var það alls ekki tilgangur minn með þessum spurningum til hans.

Ég hélt eða veit ekki annað en að einhverjir lífeyrissjóðirnir hafi verið á meðal kröfuhafa í þrotabú BM Vallá og því var þessi spurning mín til Þorsteins, ekkert óeðlileg. Einnig í ljósi þess að til stóð þegar reynt var að ná nauðarsamningum við kröfuhafa 2012 að lífeyrissjóðirnir kæmu með 2 milljarða inní þá samninga. Þessi spurning var einnig ekkert óeðlileg í ljósi þess að Þorsteinn var framkvæmdastjóri BM Vallá í 8 ár.

Pistil minn byggðist uppá því að mér fyndist það grátbroslegt og hræsni að bæði Þorsteinn og Guðrún Hafsteinsdóttir hafa kallað eftir inngripi frá Fjármálaeftirlitinu vegna þess að Trúnaðarráð VR kaus að setja sína fulltrúa í stjórn LV af. Ég byggi þessa skoðun mína á því að þessi ummæli frá áðurnefndum aðilum séu grátbrosleg og hræsni í ljósi þess að ég minnist þess ekki að heyrðist hafi frá þeim þegar lífeyrissjóðirnir töpuðu 500 milljörðum af lífeyrir launafólks.

Ég spyr því, er Þorsteinn ekki að vega að æru formanns og trúnaðarráðsmanna VR með því að saka þá um að hafa nánast framkvæmt ólöglegt athæfi með því að setja fulltrúa VR í stjórn LV af og kalla eftir aðkomu FME?

Það er magnað þegar aðilar sem tengjast atvinnurekendum eru að skipta sér af innri málum stéttarfélagana þegar kemur að því að skipa fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóðanna. Hví í ósköpunum kölluðu ekki áðurnefndir aðilar eftir rannsókn fjármálaeftirlitsins þegar lífeyrissjóðirnir töpuðu 500 milljörðum vegna glórulausra fjárfestinga í fjármála og atvinnulífinu. Já 500 milljörðum!

Það er nú kannski rétt að rifja upp að Lífeyrissjóður verslunarmanna tapaði tæpum átján milljörðum á hlutabréfaeign sinni í Kaupþingi, samkvæmt upplýsingum sem fram koma í skýrslu nefndar sem rannsakaði fjárfestingar lífeyrissjóðanna fyrir hrun.

Í þessu samhengi er líka rétt að rifja upp að í afriti af lánabók Kaupþings sem lekasíðan Wikileaks birti haustið 2008 kom fram að BM Vallá skuldaði bankanum 62 milljónir evra, jafnvirði ellefu milljarða á þávirði.

Hins vegar er jákvætt að það sé endanlega staðfest að aldrei var neitt greitt til ríkissjóðs af kaupverði Sementsverksmiðjunnar af hálfu þeirra aðila sem „keyptu“ hana á sínum tíma,“ skrifar Vilhjálmur í opinni færsu á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert