Áhrifin sem veðurofsi þriðjudags hafði á rafmagn í landinu undirstrika mikilvægi þess að flutnings- og dreifikerfi raforku sé eflt á landsvísu. Þetta segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem tekur þó fram að veðrið hafi verið óvenjulegt.
Rafmagn sló út víða um land á þriðjudag og miðvikudag, sérstaklega á landinu norðanverðu. Engar rafmagnstruflanir urðu á höfuðborgarsvæðinu. Fjarskiptasamband rofnaði víða um land, aðallega vegna rafmagnsleysis. „Það er auðvitað algjörlega augljóst að raforku- og fjarskiptakerfi snýst um þjóðaröryggi,“ segir Þórdís og bætir við að umbætur á flutnings- og dreifikerfinu séu væntanlegar.
„Það er deginum ljósara eftir þetta gjörningaveður sem gengið hefur yfir að það vantar mjög mikið upp á það að innviðir raforkukerfisins séu í lagi. Það hlýtur að vera forgangsverkefni stjórnvalda, eftir að farið verður að kortleggja þær afleiðingar og það tjón sem þetta veður hefur valdið, að hlutast til um að gerðar verði ráðstafanir til þess að byggja upp raforkuinnviðina. Það vantar mikið upp á að þeir séu í lagi,“ sagði Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, í samtali við mbl.is. Hann sagði að öll vinnsla í frystihúsi, sláturhúsi, mjólkursamlagi og steinullarverksmiðju hefði stöðvast vegna rafmagnsleysisins.
„Þetta var ekta fárviðri og meira en það,“ segir Árni S. Þórarinsson, bóndi á Hofi í Svarfaðardal, í umfjöllun um veðurhaminn í Morgunblaðinnu í dag. „Það er ekki gott að vera kúabóndi núna. Það er búið að vera rafmagnslaust síðan kl. ellefu í gærmorgun. Það er allt rafmagnslaust á Dalvík og hér í Svarfaðardal.“
Árni er með rafknúið rörmjaltakerfi til að mjólka um þrjátíu kýr. „Þær eru ómjólkaðar. Við reyndum aðeins að handmjólka þær en það þýðir bara ekkert að handmjólka. Kýrnar eru ekki vanar því og svo er allt í kolsvartamyrkri. Þær verða hálfhvekktar á því að komið sé með ljós í fjósið.“