Kemur frá Kína á fjórða tímanum í dag

Vél Icelandair er rétt ókomin í lofthelgi Finnlands á leið …
Vél Icelandair er rétt ókomin í lofthelgi Finnlands á leið sinni frá Kína með 16 tonn af lækningabúnaði. Kort/Flightradar24

Flugvél Icelandair sem flytur nú 16 tonn af lækningabúnaði frá Kína er væntanleg til landsins um klukkan hálffjögur síðdegis. Er þetta önnur vélin sem fer til Kína að sækja slíkar vörur á rúmlega viku. Flugið til baka tekur um 12 klukkustundir og með stoppi í Kína er því um að ræða samtals um 30 klukkustunda ferðalag.

Vélin lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli í gærmorgun með 12 manna áhöfn. Eru sex flugmenn um borð, fjórir hlaðmenn og tveir flugvirkjar. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við mbl.is að þar sem um langt flug sé að ræða fari tvær áhafnir flugmanna með, en hvíldaraðstaða er í vélinni. Hún segir að stoppað hafi verið í Kína í um sex klukkustundir meðan farminum var hlaðið um borð í vélina. Allt hafi gengið að óskum og vélin svo haldið af stað til baka.

Icelandair Cargo flytur búnaðinn fyrir aðila í heil­brigðis­geir­an­um á Íslandi …
Icelandair Cargo flytur búnaðinn fyrir aðila í heil­brigðis­geir­an­um á Íslandi og DB Schen­ker Ljósmynd/Aðsend

Um er að ræða leiguflug á veg­um Icelanda­ir Cargo og Loft­leiða Icelandic í sam­starfi við aðila í heil­brigðis­geir­an­um á Íslandi og DB Schen­ker, en það er sambærilegt fyrirkomulag og var fyrir viku þegar flugvél frá félaginu sótti 17 tonn af búnaði.

Eftir að búnaðurinn kom til landsins í síðustu viku kom fram að hann uppfyllti allar kröfur sem til slíks búnaðar eru gerðar, nema til gríma. Við nánari skoðun kom hins vegar í ljós að þær upp­fylla gæðakröf­ur ef farið er eft­ir öll­um þeim leiðbein­ing­um sem fylgja, þvert á það sem talið var í fyrstu.

Þegar þetta er skrifað er vél Icelandair rétt ókomin inn í lofthelgi Finnlands, en hún hefur flogið yfir lofthelgi Rússlands, Mongólíu og Kína á leiðinni hingað til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert