Rannsókn á brunanum miðar vel

Rannsókn brunans á Bræðraborgarstíg miðar vel.
Rannsókn brunans á Bræðraborgarstíg miðar vel. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rannsókn á eldsvoða sem varð við Bræðraborgarstíg í júlí miðar vel, að sögn Margeirs Sveinssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. 

„Enn er verið að bíða niðurstaðna ýmissa rannsókna sem fram hafa farið vegna þessa máls,“ segir Margeir í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is.

Karlmaður á sjötugsaldri hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan bruninn varð og var í ágúst úrskurðaður af dómstólum í áframhaldandi gæsluvarðhald fram til 8. september en gæsluvarðhaldsins var óskað á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 

Þrír létust í brunanum og er málið rannsakað sem manndráp af ásetningi. Sá sem situr í gæsluvarðhaldi gæti því átt yfir höfði sér ævilanga fangelsisvist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert