Aðgerðir hertar – tíu mega koma saman

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert

Tíu manns mega koma saman frá og með miðnætti en hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins voru kynntar á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar og þríeykisins í Hörpu.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti hertar aðgerðir sem gilda um allt land. Gert er ráð fyrir því að aðgerðirnar gildi til og með 17. nóvember. 

Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg.

Svandís sagði enn fremur að tveggja metra reglan yrði áfram í gildi og aukin áhersla yrði lögð á grímunotkun en ráðherra sagði að börn fædd 2015 og síðar yrðu undanþegin tveggja metra reglu og grímuskyldu.

Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir á fundinum í dag.
Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir á fundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allt íþróttastarf og sviðslistir leggjast af og sundlaugar og krár verða lokaðar.

Veitingastaðir þurfa áfram að loka klukkan 21:00.

Svandís segir að vissulega séu þetta harðar aðgerðir en það verði að bregðast við, annars sé hætta á frekari hópsmitum. Álagið á Landspítala sé mikið sem og víðar í heilbrigðiskerfinu.

Helstu takmarkanir:

  • Allar takmarkanir ná til landsins alls.
  • 10 manna fjöldatakmörk meginregla.
    - Heimild fyrir 30 manns í útförum en 10 að hámarki í erfidrykkjum.
    - 50 manna hámarksfjöldi í lyfja- og matvöruverslunum en reglur um aukinn fjölda með hliðsjón af stærð húsnæðisins.
    - Fjöldatakmarkanir gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug eða störf viðbragðsaðila.
    - Fjöldatakmarkanir gilda ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og dómstóla.
  • 10 manna fjöldatakmörk eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heimili.
  • Íþróttir óheimilar.
  • Sundlaugum lokað.
  • Sviðslistir óheimilar.
  • Krám og skemmtistöðum lokað.
  • Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00.
  • Grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja tveggja metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Börn fædd 2015 og síðar undanþegin tveggja metra reglu, fjöldamörkum og grímuskyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).

Undanþáguheimildir:

  • Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkunum vegna félagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast. Þar undir fellur m.a. heilbrigðisstarfsemi og félagsþjónusta.
  • Ráðherra getur veitt undanþágu við banni frá íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, til dæmis alþjóðlega keppnisleiki.

Ný reglugerð um takmarkanir á skólastarfi verður kynnt í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert