„Nálgast það að vera morð“

Jón Baldvin Hannibalsson ásamt Bryndísi Schram.
Jón Baldvin Hannibalsson ásamt Bryndísi Schram. mbl.is/Ómar Óskarsson

Móðir Aldísar Schram, Bryndís Schram, sagðist aldrei hafa komið að nauðungarvistun dóttur sinnar. Miðað við dómsskjöl sem lögmaður Aldísar framvísaði skrifaði hún þó að minnsta kosti einu sinni undir beiðni um nauðungarvistun. Bryndís segir ekki trúa neinum ásökunum á hendur Jóni Baldvini Hannibalssyni.

Bryndís gaf skýrslu fyrir dómi í dag í máli eiginmanns Bryndísar, Jóns Baldvins Hannibalssonar, gegn Aldísi Schram dóttur þeirra, Sigmari Guðmundssyni fréttamanni og Ríkisútvarpinu.

Skýrsluna gaf Bryndís í gegnum síma. Hún lýsti því að Aldís hefði verið mjög veik á geði á tímabili. Hún sagðist einungis einu sinni hafa heimsótt hana á geðdeild meðan á þeim veikindum stóð og sagði erfitt að tala um þá reynslu.

„Ég var bara búin að tapa dóttur minni, mér fannst eins og ég væri búin að missa hana og ég myndi aldrei nálgast hana aftur, ég gæti það ekki,“ sagði Bryndís.

Væri búin að slíta sambandi við slíkan „ræfil og öfugugga“

Hún sagði að hún hefði ekki heyrt af meintum sifjaspellum Jóns Baldvins fyrr en árið 2019 þegar greint var frá meintum kynferðisbrotum Jóns Baldvins á hendur Aldísi í Morgunútvarpinu á Rás tvö.

Hún sagðist ekki trúa slíkum ásökunum né öðrum ásökunum um kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi af hálfu Jóns Baldvins, ef „eitthvert sannleikskorn“ væri í slíkum ásökunum sagði Bryndís að hún væri löngu búin að slíta sambandi við slíkan „ræfil og öfugugga“.

„Þetta er svo svívirðilegt, þetta er svo niðurlægjandi,“ sagði Bryndís sem sagðist aldrei hafa staðið eiginmann sinn að neinum ótrúnaði. Um ásakanir um barnaníð sagði Bryndís:

„Þetta er eitthvert ljótasta orð sem er til í íslenskri tungu, það nálgast það að vera morð. Slíkur maður ætti að vera í fangelsi eða horfinn af sjónarsviðinu. [...] Ef eitthvað slíkt hefði gerst á mínu heimili hefði ég gengið út og aldrei látið sjá mig framar.“

Segir ásakanirnar koma „úr sama sjúka huganum“

Bryndís sagði að ásakanir á hendur eiginmanni hennar kæmu úr „sjúkum huga“ Aldísar. Að ef fólk ætlaði að trúa ásökunum á hendur honum þyrfti það líka að trúa því sem Aldís hefði sagt um móður sína, að hún væri „oftast sauðdrukkin og [gripi] utan um kynfæri ungra karla á fylleríum“.

„[Þessar ásakanir] koma allar úr sama sjúka huganum frá dóttur minni sem er veik og leitar ekki til læknis,“ sagði Bryndís.  

Tugir kvenna hafa ásakað Jón Baldvin um kynferðislega áreitni og ofbeldi. Jón Baldvin sagði í réttarhöldunum fyrr í dag að hann teldi að ásakanirnar eiga rætur að rekja til meintrar geðveiki Aldísar. Spurð hvort hún teldi einnig að Aldís stæði með einhverjum hætti að ásökunum kvennanna sagði Bryndís að hún gæti vel trúað því, sérstaklega í ljósi þess að Aldís hefði skrifað leikrit um foreldra sína þar sem sambærilegar lýsingar hefðu komið fram.

Sum­arið 2019 stefndi Jón Bald­vin dótt­ur sinni Al­dísi Schram vegna um­mæla henn­ar í Morg­unút­varp­inu 17. janú­ar sama ár. Jón Bald­vin ger­ir ekki fjár­kröf­ur á hend­ur Al­dísi held­ur krefst þess að um­mæl­in, níu úr Morg­unút­varp­inu og ein af Face­book, verði dæmd dauð og ómerk.

Sig­mari er stefnt fyr­ir fern um­mæli úr þætt­in­um 17. janú­ar en Jón Bald­vin kref­ur hann um 2,5 millj­ón­ir króna.

Um­mæli sem Jón Bald­vin fer fram á að dæmd verði dauð og ómerk eru eft­ir­far­andi:

Morg­unút­varp, Rás 2, 17. janú­ar 2019, um­mæli viðhöfð af Al­dísi:

  1. ... hann fær mig und­ir fölsku yf­ir­skini að heim­sækja afa minn ... mér var haldið inni þarna í mánuð, sem sagt ólög­lega.
  2.  ... já. Fimm sinn­um á næstu 10 árum kast­ast í kekki milli mín og Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar og því lyktaði ávallt með því að [sic] sigaði á mig lög­reglu sem hand­tók mig, hann er nátt­úr­lega ut­an­rík­is­ráðherra ...
  3. Hann gat bara þaðan í frá, þáver­andi ut­an­rík­is­ráðherra og síðar sendi­herra, virðist vera að hringja bara í lög­reglu og þá var ég þar með hand­tek­in, um­svifa­laust í járn­um, farið með mig upp á geðdeild ...
  4. ... hann er þá líka að mis­nota lít­il börn.
  5. ... ég neita að skilja þau eft­ir í um­sjón karls sem káf­ar á litl­um stúlku­börn­um.
  6.  Og sem sagt 10 mín­út­um eft­ir að ég kæri Jón Bald­vin þá hring­ir dyra­bjall­an. Þar rudd­ust þarna inn tveir lög­reglu­menn ef ekki þrír og ég, þegar ég sé það þá reyni ég að loka en auðvitað tókst mér það ekki, þeir ryðjast þá þar með inn og þeir svara mér engu, ryðjast inn í stofu þar sem dótt­ir mín 5 ára göm­ul er að lesa og þegar barnið er tekið frá mér þá verð ég æf.
  7. ... það er faðir minn sem stend­ur fyr­ir því að hér eigi að loka mig inni.
  8. Fíkn, auðvitað er barnagirnd fíkn, þetta er fíkn.
  9. ... nauðung­ar­vist­un án dóms og laga er þá ólög­mæt frels­is­svipt­ing ...

Face­book, 5. fe­brú­ar 2019, höf­und­ur Al­dís:

  1. ... og sigra hann og hans barn­aníðinga­banda­lag.

Rás 2, 17. janú­ar 2019, höf­und­ur og flytj­andi Sig­mar (Al­dís til vara):

  1. ... að Jón Bald­vin hafi notað aðstöðu sína sem sendi­herra til að láta nauðung­ar­vista hana á geðdeild.
  2. Sá fund­ur Al­dís­ar og Jóns Bald­vins seg­ir hún hafa reynst sér ör­laga­rík­ur og orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauðung­ar­vistuð á geðdeild.
  3. ... að Jón Bald­vin hafi sett sig í sam­band við fé­lags­mála­yf­ir­völd og geðdeild með það fyr­ir aug­um að fá hana nauðung­ar­vistaða í enn eitt skiptið.
  4. Þar seg­ir hún einnig að Jón Bald­vin hafi framið sifja­spell þegar hún var full­orðin kona.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert