Farið fram á frekari upptöku hjá Zuista-bræðrum

Bræðurnir Ágúst Arnar Ágústsson (t.v.) og Einar Ágústsson hafa verið …
Bræðurnir Ágúst Arnar Ágústsson (t.v.) og Einar Ágústsson hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti upp á tugi milljóna í tengslum við starfsemi félagsins Zuism trúfélag. Samsett mynd

Embætti héraðssaksóknara hefur gefið út framhaldsákæru í sakamáli gegn bræðrunum Ágústi Arnari Ágústssyni og Einari Ágústssyni og félaginu Zuism trúfélagi sem þeir voru í forsvari fyrir. Kemur framhaldsákæran í kjölfar þess að 16.100 bandaríkjadalir fundust á reikningum sem skráðir voru á Einar hjá bresku verðbréfafyrirtæki.

Fékk embættið upplýsingar um fjármunina frá fulltrúa bandaríska dómsmálaráðuneytisins, en þar kom fram að þótt reikningarnir sem um ræddi væru skráðir hjá verðbréfafélaginu Interactive Brokers í Bretlandi hafi eignir á þeim endanlega verið varslaðar hjá móðurfélaginu í Bandaríkjunum. 

Í framhaldsákærunni, sem fyrst var greint frá á Vísi, er farið fram á upptöku þessara fjármuna, sem nema rúmlega tveimur milljónum íslenskra króna. Hafa bandarísk yfirvöld kyrrsett eignir á báðum reikningunum.

Í málinu eru bræðurnir sagðir hafa styrkt og hag­nýtt sér þá röngu hug­mynd starfs­manna ís­lenskra stjórn­valda að trú­fé­lagið Zuism upp­fyllti skil­yrði fyr­ir skrán­ingu trú­fé­lags sam­kvæmt lög­um nr. 108/​1999 um skráð trú­fé­lög og lífs­skoðun­ar­fé­lög. Með þessu hafi þeir fengið greidd­ar 84,7 millj­ón­ir úr rík­is­sjóði í formi sókn­ar­gjalda, í sam­tals 36 skipti, á ár­un­um 2017 til 2019. „Með þessu ollu ákærðu ís­lenska rík­inu veru­legri fjár­tjóns­hættu og fjár­tjóni í reynd,“ seg­ir í upphaflegri ákæru málsins.

Þá eru þeir sagðir hafa beitt blekkingum með að vísa til þess að innan félagsins væri lögð stund á átrúnað og stöðug starfsemi færi þar fram. Í raun hafi hins vegar engin starfsemi verið innan félagsins sem uppfyllti lagaskilyrði fyrir trúfélagi og að fjármununum hafi verið ráðstafað með öðrum og óskyldum hætti, meðal annars í þágu bræðranna.  

Var meðal annars stór hluti fjármunanna millifærður á erlenda bankareikninga félaga í eigu bræðranna eða notaður í fjárfestingar hér heima og erlendis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert