Gossvæðinu verður lokað klukkan eitt

Ekkert útivistarveður verður seinnipartinn við eldgosið í Geldingadölum.
Ekkert útivistarveður verður seinnipartinn við eldgosið í Geldingadölum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svæðinu umhverfis gönguleið að eldgosinu í Geldingadölum verður lokað klukkan 13 í dag. 

Hjálmar Hallgrímsson, lögreglumaður í Grindavík, segir við mbl.is að Suðurstrandarvegi verði lokað frá Krýsuvík og að bænum Hrauni í Grindavík.

Hann segir lokunina tvíþætta; annars vegar vegna veðurs og hins vegar verður unnið að viðhaldi á Suðurstrandarveginum. 

„Það er eitthvert fólk á svæðinu en veðrið er alls ekki gott. Veður fer versnandi og verður mjög slæmt seinnipartinn,“ segir Hjálmar.

Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir svæðið:

Austanáttin hefur mælst um 17 m/s við gosstöðvarnar í morgun, það er þurrt og frostið um 7 gráður. Í dag hvessir enn frekar, og undir kvöld er útlit fyrir austan 20-25 m/s og snjókomu og skafrenning með lélegu skyggni og minnkandi frosti. Sem sagt stórhríð og ekkert útivistarveður.  lægir seint í kvöld, og í nótt og fyrramálið verða austan 5-10 m/s og él á svæðinu, með hita nálægt frostmarki. Um og eftir hádegi á morgun lægir svo enn frekar og áttin verður breytileg.  Annað kvöld snýst svo í norðan 10-15 m/s og styttir upp og kólnar.   Áfram norðan 10-15 og þurrt á mánudag, en síðdegis snýst í minnkandi norðaustanátt. Vægt frost.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert