Alls eru 92 núna í eftirliti á Covid-19-göngudeild Landspítalans. Þriðjungur þeirra er börn.
Þetta segir Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, við mbl.is.
Frá því í morgun hefur fólki sem er í eftirliti því fjölgað um í kringum 30 talsins. 27 smit greindust innanlands í gær og þar af voru 25 í sóttkví.
Ragnar Freyr Ingvarsson, umsjónarmaður göngudeildarinnar, sagði við mbl.is í morgun að starfsfólkið væri vel undirbúið fyrir fjölgun smita. „Við erum búin að gera þetta áður. Við erum með innviðina tilbúna til að glíma við það sem gæti gerst, að fjórða bylgjan sé komin í gang, og erum reiðubúin til að takast á við það eins og í hin skiptin,“ sagði hann.