Árangur kvenna áberandi

Þrjár ungar konur voru meðal fjögurra efstu í prófkjöri sjálfstæðismanna …
Þrjár ungar konur voru meðal fjögurra efstu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Samsett mynd

„Það sem vekur athygli er góð útkoma kvenna. Að það séu þrjár konur í fjórum efstu sætunum er óvenjulega góð niðurstaða fyrir konur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,“ segir Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur í samtali við mbl.is. 

Hún segir í sjálfu sér fátt annað koma á óvart „nema kannski að Brynjar Níelsson hafi túlkað úrslitin þannig að það sé ástæða til að taka ekki sæti á lista“.

Stefanía segir árangur Brynjars alls ekki slæman sérstaklega miðað við að hann rak ekki mikla kosningabaráttu. 

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur.
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur. mbl.is/Styrmir Kári

Brynjar hafnaði í fimmta sæti en sóttist eftir öðru. Fimmta sæti gefur alla jafnan þriðja sæti á framboðslista til Alþingis og líklegt þingsæti eða baráttusæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann lýsti því yfir í gær að hann hygðist hafna sætinu. 

„En það er tækifæri fyrir Kjartan Magnússon sem að kom sterkur inn í þessu prófkjöri. Hann hefur sýnt það í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnar að hann hefur átt mjög góðan stuðning,“ segir Stefanía. 

Spurð út í kosningu Guðlaugs Þórs og Áslaugar Örnu, sem bæði sóttust eftir fyrsta sæti í prófkjörinu, segir Stefanía ljóst að meirihluti kjósenda hafi ekki kosið eftir „blokkum“. Guðlaugur og Áslaug voru með afgerandi fjölda atkvæða ýmist í fyrsta eða annað sæti í prófkjörinu. 

„Það er bara harðasta stuðningsfólk annars hvort frambjóðanda sem kýs eftir blokkum. Hinn almenni flokksmaður kýs Guðlaug og Áslaugu eða öfugt, eftir því sem hann telur best,“ segir Stefanía. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert