Landsréttur staðfestir kyrrsetningu

Húsið rifið fyrr í sumar.
Húsið rifið fyrr í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að fella úr gildi ákvörðun sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hann hafði synjað því að kyrrsetja eignir HD verks.

Íbúar að Bræðraborgarstíg 1, og aðstandendur þeirra sem létust í bruna þar 25. júní á síðasta ári, hafa krafist þess að eignir félagsins verði kyrrsettar til að tryggja kröfu þeirra um miskabætur.

Í úr­sk­urði héraðsdóms var felld úr gildi ákvörðun sýslu­manns­ins á höfuðborg­ar­svæðinu frá 14. janú­ar um að synja um fram­gang kyrr­setn­ing­ar­inn­ar á eign­um HD verks ehf. og lagði héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur fyr­ir sýslu­mann­inn á höfuðborg­ar­svæðinu að kyrr­setja fast­eign­ir fé­lags­ins á Dal­vegi 24 og 26 eða aðrar eign­ir fé­lags­ins.

Landsréttur hefur nú staðfest þennan úrskurð eins og áður sagði.

Þegar selt þrjár eignir

Tekið er fram í úrskurði Landsréttar að HD verk hafi þegar selt þrjár af eignum sínum.

Með vísan til þess, og viðvarandi tapreksturs undanfarin ár sem lesa megi úr ársreikningi félagsins, sé það mat réttarins að án kyrrsetningar dragi mjög úr líkindum til að kröfur íbúanna og aðstandendanna verði fullnustaðar.

Þrír lét­ust í brun­an­um á Bræðra­borg­ar­stíg.

Áður hef­ur komið fram í um­fjöll­un mbl.is að kröf­ur aðstand­enda og leigj­enda sem bjuggu í hús­inu sem brann hljóði upp á tugi millj­óna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert