Hofsjökull hefur rýrnað mikið

Horft til norðvesturs að sunnanverðum Hofsjökli. Fremst er Múlajökull, sem …
Horft til norðvesturs að sunnanverðum Hofsjökli. Fremst er Múlajökull, sem er rétt norðan við Þjórsárver. Ljósmynd/Þorsteinn Þorsteinsson

„Neðstu hlutar jökulsins, sporðarnir, hafa lækkað um marga tugi metra og jafnvel upp undir hundrað metra sums staðar,“ segir Þorsteinn Þorsteinsson, jöklafræðingur hjá Veðurstofunni, um Hofsjökul.

Veruleg leysing var á Hofsjökli í sumar samkvæmt mælingum. Hún var einkar mikil á norðanverðum jöklinum. Ársafkoma jökulsins 2020-2021 er -1,33 m en meðaltal áranna 1991-2020 er -0,92 m. Rýrnun Hofsjökuls á þessu ári var 45% umfram meðaltal síðustu ára. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert