Hættir sem bæjarstjóri næsta vor

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ. mbl.is/Golli

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn í bæjarstjórnarkosningunum næsta vor.

Mosfellingur greinir frá þessu.

Haraldur tilkynnti þetta á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ í gærkvöldi.

Haraldur er oddviti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ. Hann hefur verið bæjarstjóri frá árinu 2007 og setið í bæjarstjórn frá árinu 2002.

„Ég var svona búinn að hugsa það með sjálfum mér fyrir fjórum árum að þetta yrði mitt síðasta kjörtímabil í bæjarstjórn Mosfellsbæjar en umfram allt hefur þetta verið afskaplega skemmtilegur og gefandi tími,“  segir Haraldur í tilkynningu sem hann hefur sent fjölmiðlum. 

Í tilkynningu bætir hann við: 

„Ég hef verið bæjarstjóri frá árinu 2007 sem er lengst allra sem gengt hafa þessu embætti í Mosfellsbæ.  Á þessum tíma hefur íbúum fjölgað um helming og þó ég segi sjálfur frá hefur alveg ótrúleg uppbygging átt sér stað hér á umliðinum árum. Mest um vert er að bæjarbúar eru stoltir af sínu sveitarfélagi, þeir standa vörð um samfélagið og sú þjónusta sem við veitum er í fremstu röð samkvæmt mælingum. Ekkert af þessu gerist fyrir tilviljun og ég vil þakka það góðri samvinnu innan meirihluta bæjarstjórnar og einnig okkar frábæra starfsfólki. Ég vil því nota þessi persónulegu tímamót til að þakka samstarfsfólki mínu, kjörnum fulltrúum, starfsfólki Mosfellsbæjar og öðrum fyrir farsælt samstarf.  Síðast en ekki  síst vil ég þakka íbúum Mosfellsbæjar fyrir að fá að vinna með þessu góða samfélagi í öll þessi ár, það hefur gefið mér mikið. En ég mun gegna starfi bæjarstjóra af trúmennsku þar til í vor þegar kjörtímabilinu lýkur.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert