Ásdís Halla sett yfir nýtt ráðuneyti

Ásdís Halla Bragadóttir.
Ásdís Halla Bragadóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ásdís Halla Bragadóttir verður sett ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis frá 1. febrúar. Setningin er tímabundin til þriggja mánaða á meðan auglýst er eftir ráðuneytisstjóra fyrir hið nýja ráðuneyti.

Það er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem setur í embættið. Ákvörðunin er tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild um setningu.

Fjölþætt reynsla

Í tilkynningu segir að Ásdís Halla hafi fjölþætta reynslu úr bæði stjórnsýslu og atvinnulífi. Hún lauk meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard-háskóla og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Hún var m.a. bæjarstjóri í Garðabæ, aðstoðarmaður menntamálaráðherra og sat í háskólaráði HR og Kennaraháskólans. Síðustu ár hefur hún komið að stofnun og rekstri fyrirtækja í heilbrigðis- og velferðarþjónustu ásamt því að sinna ritstörfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert