130 milljónir í starfsmannamál Eflingar

Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrum formaður verkalýðsfélagsins Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrum formaður verkalýðsfélagsins Eflingar. Eggert Jóhannesson

Kostnaður Eflingar vegna starfsmannamála í þriggja ára formannstíð Sólveigar Önnu Jónsdóttir hleypur á um 130 milljónum. Þá létu 80% starfsmanna félagsins af störfum á meðan hún var formaður. Nú sækist Sólveig aftur eftir formennsku í félaginu.

40 af 50 starfsmönnum létu af störfum

Samkvæmt samantekt sem unnin var af Eflingu létu 40 af 50 starfsmönnum skrifstofunnar af störfum í stjórnartíð Sólveigar Önnu. Þá greiddi Efling rúmar 14 milljónir króna í starfslokasamninga og um 66 milljónir vegna launa á uppsagnarfresti, sem fólk þurfti ekki að vinna, að því er RÚV greinir frá.

Þar að auki var kostnaður félagsins vegna langtímaveikinda starfsmanna rúmar 48 milljónir. Samtals gera það 128 milljónir á þessu tímabili og er þar undanskilinn ýmiss annar kostnaður vegna þjónustu sálfræðinga og annarra sérfræðinga.

Sólveig Anna var kjörin formaður Eflingar árið 2018 og hlaut hún endurkjör tveimur árum síðar. Hún sagði svo af sér í nóvember í fyrra og sakaði starfsfólk félagsins um að hafa ofsótt sig og hrakið úr starfi eftir að hún og aðrir stjórnendur félagsins voru gagnrýndir fyrir framkomu sína gagnvart öðrum starfsmönnum.

Starfsfólk kvíði mögulegri endurkomu Sólveigar

Ragnheiður Valgarðsdóttir, annar trúnaðarmanna starfsfólks Eflingar, greindi frá því í samtali við mbl.is í gær að fjöldi starfsmanna félagsins kvíði mögulegri endurkomu Sólveigar Önnu.

Sólveig Anna neitaði að tjá sig í morgun þegar mbl.is leitaði viðbragða hennar við ummælum Ragnheiðar.

Dagana 9.-15. febrúar munu 27 þúsund félagsmenn Eflingar, sem er næststærsta stéttarfélag landsins, kjósa nýjan formann félagsins. Frestur til að skila inn framboði rann út í morgun. Auk Sólveigar Önnu eru Ólöf Helga Adolfsdóttir, varaformaður Eflingar, og Guðmundur Baldursson, sem áður sat í stjórn félagsins á lista Sólveigar Önnu, í framboði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert