Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps

Frá aðgerðum lögreglunnar í dag.
Frá aðgerðum lögreglunnar í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að skotárás á Miðvangi í Hafnarfirði í morgun sé rannsökuð sem tilraun til manndráps.

Karlmaður á sjötugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um að hafa skotið á tvær kyrrstæðar bifreiðar á bifreiðastæði á milli fjölbýlishúss og leikskóla. Önnur bifreiðin var mannlaus en hin ekki, og þykir mikil mildi að ekki fór verr að sögn lögreglu. 

Rannsókn málsins er á frumstigi og ákvörðun um gæsluhaldvarðhaldskröfu eða önnur úrræði gagnvart manninum liggur ekki fyrir, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu. 

Þá segir lögreglan að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert