Hringferð til styrktar Píeta-samtökunum

Frá fyrri hringferð Toyrun til styrktar Píeta-samtökunum árið 2020.
Frá fyrri hringferð Toyrun til styrktar Píeta-samtökunum árið 2020.

Toyrun-mótorhjólasamtökin hefja ferðalag sitt umhverfis landið í dag og selja barmmerki til styrktar Píeta-samtökunum. Toyrun hafa ferðast um landið í þessum tilgangi í þó nokkur ár.

Mótorhjólasamtökin lögðu af stað frá Reykjavík í dag og koma við á Sauðárkróki á morgun milli 9 til 10 á bensínstöð N1. Toyrun verða síðan á Akureyri sama dag á milli 12 til 13 og verða þeir á Ráðhústorginu.

Á milli 15 til 16 verða mótorhjólasamtökin á Húsavík og síðar á milli 20 til 21 verða þau á Egilstöðum á N1.

Samtökin hvetja alla til að kíkja á þau í spjall og geta áhugasamir keypt barmmerki til styrktar Píeta-samtökunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert