„Ekkert danskt hér, með fullri virðingu“

Ekki fylgir sögunni hvort forsetinn eigi lakkrísbindi inni í skáp.
Ekki fylgir sögunni hvort forsetinn eigi lakkrísbindi inni í skáp. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að súkkulaðihúðaður lakkrís sé „eins íslenskur og jöklarnir og álfarnir, eldfjöll og fossar. Ekkert danskt hér, með fullri virðingu.“

Í tísti hvetur Guðni sína kæru vini í Danmörku frekar til að setja súkkulaði á smurbrauð eða steikt svínakjöt, sem er þeim svo kært. „Það gæti verið eitthvað.“

Í liðinni viku sagði mbl.is frá því, að full­yrðing­ar danska lakk­rís­fram­leiðand­ans Johans Bülow um að hug­mynd­in að súkkulaðihjúpuðum lakk­rís hefði komið frá hon­um, væru „dauðans della“, að sögn fram­kvæmda­stjóra sæl­gæt­is­fram­leiðand­ans Kólus. Svo virðist sem að forseti Íslands taki í sama streng. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert