Gæsluvarðhald yfir timburinnflytjandanum framlengt

Efnin sem fundust í timbrinu.
Efnin sem fundust í timbrinu. Ljósmynd/Hollenska lögreglan

Gæsluvarðhald yfir Páli Jónssyni timburinnflytjanda, eins sak­born­ing­anna í stóra kókaín­mál­inu, var í gær framlengt um tvær vikur, eða til 24. febrúar. Saksóknari fór fram á fjórar vikur en dómari féllst ekki á þá beiðni.

Þetta staðfestir Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi Páls. 

Fjór­ir menn eru tald­ir hafa reynt að smygla inn tæp­lega 100 kg af kókaíni til lands­ins í timb­ur­send­ingu á síðasta ári. Þeir voru hand­tekn­ir í byrj­un ág­úst. 

Fresta þurfti aðalmeðferð

Aðalmeðferð málsins er hafin en fresta þurfti framhaldi hennar í ljósi þess að erfiðlega hefur gengið að fá vitni frá Hollandi.

Ekki liggur fyrir hvenær aðalmeðferð hefst að nýju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert