Brennanlegur úrgangur verður fluttur til Svíþjóðar

Er útflutningur á brennanlegum úrgangi hefst mun urðun í Álfsnesi …
Er útflutningur á brennanlegum úrgangi hefst mun urðun í Álfsnesi dragast saman um 65% á ári miðað við árið 2022. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn Sorpu hefur falið framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Stena Recycling AB um móttöku á brennanlegum úrgangi frá höfuðborgarsvæðinu til brennslu í Svíþjóð. Stefnt er að því að hefja útflutning á úrganginum á haustmánuðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sorpu en með þessu verður íslenskur úrgangur nýttur til orkuframleiðslu í Svíþjóð í stað þess að hann sé urðaður á Íslandi.

Gert er ráð fyrir að flytja út 43.000 tonn af brennanlegum úrgangi árlega til brennslu.

Í tilkynningunni segir að tilboð Stena var um 35% undir kostnaðaráætlun Sorpu fyrir útboðið.

Er útflutningur á brennanlegum úrgangi hefst mun urðun í Álfsnesi dragast saman um 65% á ári miðað við árið 2022.

„Með útflutningi verður dregið verulega úr urðun á landsvísu og neikvæðum áhrifum urðunarstaðar á nærliggjandi byggðir,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert