40% hækkun og rukka á sunnudögum

Reykjavíkurborg hyggst hækka stöðumælagjöld.
Reykjavíkurborg hyggst hækka stöðumælagjöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reykjavíkurborg hyggst hækka bílastæðagjöld á gjaldsvæði 1 um 40% í miðborg Reykjavíkur. Þá verður tími gjaldtöku lengdur frá 18 til 21 á virkum dögum og laugardögum. Eins verður tekin upp gjaldskylda á sunnudögum á gjaldsvæðum 1 og 2.

Sem stendur hljóðar gjaldskráin á svæði 1 upp á 430 krónur fyrir hverja klukkustund en gjaldið á að hækka í 600 krónur á klukkustund. Þá hefur gjaldskylda verið frá 9-18 á virkum dögum en frá 10-16 á laugardögum. Ekki hefur verið rukkað fyrir bílastæði á sunnudögum til þessa. 

Tillagan var samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði í gær og staðfest í flýtimeðferð borgarráði í dag.

Kjartan Magnússon.
Kjartan Magnússon.

Hækkun langt umfram verðlag 

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir hækkunina ótrúlega þegar tekið sé mið af verðbólgu. 

„Allir stjórnmálaflokkar eru sammála um það að aðalviðfangsefnið sé að ná niður verðbólgunni. En Reykjavíkurborg leyfir sér á sama tíma að fara á sama tíma í 40% hækkun á þjónustugjöldum. Bílastæði eru ekkert annað en þjónustugjöld sem þúsundir nota á hverjum degi. Við höfum rætt þessi gjaldskrármál í allan vetur og hvarvetna höfum við fengið þau skilaboð frá ríkisstjórn og öðrum að ef hækkun er nauðsynleg að slík hækkun verði ekki meiri en verðbólgan,“ segir Kjartan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert