50 ákærðir í máli Sverris

Sverrir Þór Gunnarsson árið 2012.
Sverrir Þór Gunnarsson árið 2012. mbl.is

Alls 50 manns hafa verið ákærðir í tengslum við „Operati­on Match Po­int“ í Brasilíu, þeirra á meðal er höfuðpaurinn Sverr­ir Þór Gunn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Sveddi Tönn.

Þessu greinir Rúv frá en ákæruskjalið er yfir 400 blaðsíður. 

Sverrir er ákærður fyr­ir stór­felld fíkni­efna­laga­brot á alþjóðavísu, hlut­deild í sam­bæri­leg­um brot­um og skipu­lagða glæp­a­starf­semi. Verði hann sakfelldur getur það haft með sér í för meira en 45 ára fangelsisvist. 

Alls voru 32 handteknir í aðgerðum lögreglunnar í apríl og þá hafa 20 bæst til viðbótar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert