Heimsmeistarinn Jón Baldursson er látinn

Jón Baldursson lést aðfaranótt laugardags.
Jón Baldursson lést aðfaranótt laugardags. mbl.is/Golli

Jón Baldursson, heimsmeistari í Bridge og margfaldur Íslandsmeistari, lést aðfaranótt laugardags.

Frá andláti hans er greint á vefsíðu Bridgesambands Íslands.

Í færslu sambandsins kemur fram að Jón hafi án nokkurs vafa verið besti bridgespilari Íslands fyrr og síðar.

Jón varð 16 sinnum Íslandsmeistari í sveitakeppni í bridge og Íslandsmeistari í tvímenningskeppni 6 sinnum. Hann varð Norðurlandameistari árin 1988, 1994, 2013, 2015 og 2019.

Á að baki yfir 600 landsleiki

Jón varð heimsmeistari í bridge er íslenska sveitin vann Bermuda Bowl, árið 1991 í Yokohama og er í frægðarhöll Evrópska Bridgesambandsins.

Jón á 600 landsleiki að baki yfir fyrir Íslands hönd.

„Hann vann Generali master, óopinbera heimsmeistarakeppni í einmenningi árið 1994, vann Transnational sveitakeppni, heimsmeistarakeppni í blönduðum flokki árið 1996 og varð tvisvar Norður-Ameríkumeistari.

Við flytum Ellu, fjölskyldu Jóns og vinum samúðarkveðjur. Á sama tíma þökkum við fyrir allt það sem Jón gerði fyrir Bridge, Jón skilur eftir sig þekkingu inn í hreyfingunni byggða á getu, reynslu og sigurvilja,“ segir að lokum í færslu Bridgesambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert