Mjög mikil skjálftavirkni undir Grindavík

Grindavíkurvegi var lokað eftir að skemmdir urðu á veginum vegna …
Grindavíkurvegi var lokað eftir að skemmdir urðu á veginum vegna skjálfta í kvöld. mbl.is/Hermann

„Þetta er hraður og stór atburður,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur Veðurstofu Íslands í jarðskorpuhreyfingum.

Hann segir skjálftahrinuna ekki á niðurleið. Mjög mikil skjálftavirkni sé undir Grindavík og er í skoðun hvort að nauðsynlegt sé að bregðast við. 

„Hvort það þurfi að taka þetta skrefinu lengra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert