Íslenskum konum tókst að koma fólki út af Gasa

Neyðarástand ríkir á Gasa-svæðinu.
Neyðarástand ríkir á Gasa-svæðinu. AFP

Sett hefur verið af stað landssöfnun til að koma fleira fólki sem hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar frá Gasa og heim til Íslands.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá Solaris, hjálparsamtökum fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi.

„Stjórnvöld hafa brugðist palestínsku þjóðinni og því hafa almennir borgarar tekið málið í sínar hendur. Þrjár konur fóru á dögunum til Egyptalands eftir að þeim blöskraði aðgerðarleysi og mælskubrögð ríkisstjórnarinnar, auk áætlana Ísraelsríkis um árásir á Rafah, þangað sem nær allt fólk á Gasasvæðinu hefur flúið. Þar eru fjölskyldurnar sem hafa fengið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar staddar,“ segir í tilkynningunni.

Konurnar sem um ræðir eru María Lilja Þrastardóttir, Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Kristín Eiríksdóttir.

Einni fjölskyldu verið komið frá Gasa

Þar segir að konurnar hafði brugðist við neyðarástandinu og vinni að því á eigin vegum að koma fólki yfir landamærin og nú þegar hefur einni palestínskri fjölskyldu, með dvalarleyfi á Íslandi, verið komið frá Gasa.

„Ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafa stöðugt forðað sér undan því að svara fyrir aðgerðarleysi sitt gagnvart dvalarleyfishöfum á Gasa. Í stað aðgerða gefa þeir í skyn að verið sé að íhuga mögulegar lausnir og að málið sé flókið. Þann 6. febrúar 2024 lýsti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra því yfir í viðtali hjá RÚV að verið væri að skoða aðgerðir sem væru „töluvert umfangsmiklar og flóknar,“ segir enn fremur í fréttatilkynningunni.

Hægt er að styrkja söfnunina með því að leggja beint inn á sérstakan söfnunarreikning Solaris fyrir Palestínu eða með Aur-appinu (mikilvægt að merkja aur-færslur með titlinum Palestína).

Reikningsnúmer: 0515-14-007470
Kennitala: 600217-0380
AUR: 123 791951

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert