Eldur kviknaði í íbúð við Yrsufell

Slökkviliðið að störfum í Yrsufelli.
Slökkviliðið að störfum í Yrsufelli. mbl.is/Kristján Þór

Eldur kviknaði í íbúð fjölbýlishúss á annarri hæð við Yrsufell um hálftíuleytið í morgun.

Tveir voru í íbúðinni en þeir eru báðir komnir þaðan út, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Slökkviliðið er að störfum á vettvangi en reykur er töluverður.

Ekki er ljóst um eldsupptök.

mbl.is/Kristján Þór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert