Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eld í póstkassa í fjölbýlishúsi um klukkan hálf tvö í nótt. Lögreglan gat slökkt eldinn án aðkomu slökkviliðs, en sameignin hafði fyllst af reyk og kom slökkvilið því á vettvang skömmu síðar og aðstoðaði við reykræstingu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Um klukkan hálf þrjú í nótt barst lögreglu tilkynning um slagsmál í miðbænum. Við komu á staðinn ræddi lögregla við vitni sem bentu á upphafsmann slagsmálanna og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Viðkomandi var vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Þá barst tilkynning um önnur slagsmál í miðbænum um klukkan hálf fimm í nótt. Þegar lögregla kom á staðinn voru allir málsaðilar að ganga á brott og virtist enginn slasaður eftir áflogin. Allir á vettvangi afþökkuðu aðstoð lögreglu.
Um klukkan tvö í nótt var tilkynnt um mann sem var æstur inn á matsölustað. Við afskipti lögreglu gaf hann upp ranga kennitölu og neitaði að segja til nafns og hafði verið með ógnandi tilburði við starfsfólk. Við komu á lögreglustöð kom í ljós að hann var 17 ára og komu foreldrar að sækja hann á lögreglustöðina.
Þá sinnti lögregla ýmsum minniháttar málum í miðbænum, meðal annars vegna ölvunar og óláta.