Nýtt húsnæði fyrir Lækjarbakka

Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Ásmundur Einar Daðason, …
Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, við undirritun leigusamnings í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Búið er að útvega meðferðarheimilinu, Lækjarbakka á Rangárvöllum, nýtt húsnæði eftir að hætta þurfti starfsemi heimilisins þegar að mygla fannst í gömlu húsnæði heimilisins fyrr á árinu.  

Starfsemi heimilisins mun hefjast að nýju í næsta mánuði í Hamarskoti í Flóahreppi, segir í tilkynningu.  

Bjóða upp á langtímameðferð

Í tilkynningu segir að heimilið sé eitt sinnar tegundar á landinu. Heimilið býður drengjum upp á langtímameðferð við vanda á borð við vímuefnaneyslu, ofbeldi, afbrot, skóla- og námserfiðleika eða sálfélagslegan vanda, að því gefnu að hafa lokið meðferð á meðferðarheimilinu Stuðlum.

„Þrotlaus vinna hefur farið í að finna meðferðarheimilinu Lækjarbakka nýjan stað og fagnaðarefni að það hafi tekist. Hver dagur sem líður án viðunandi aðstöðu er einum degi of mikið, fyrir drengina á meðferðarheimilinu og einnig fjölskyldur þeirra. Í Hamarskoti er hægt að hefja starfsemina að nýju sem fyrst og til lands tíma,“ er haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, í tilkynningu. 

Meðferðin um sex mánuðir

Allt að sex drengir eru á heimilinu hverju sinni og tekur meðferðin um sex mánuði þó tímalengd sé mismunandi eftir einstaklingum. Áhersla er lögð á að virkja drengina í tómstundum, skóla og vinnu. Við lok meðferðar stendur þeim til boða sex mánaða eftirfylgd. 

Húsnæðið Hamarskot er í eigu hins opinbera í gegnum Húsnæði- og mannvirkjastofnun og er í leigu Barna- og fjölskyldustofu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert