Kjúklingarétturinn sem eldar sig sjálfur

mbl.is/Salt eldhús

Matur sem eldar sig sjálfur gæti verið yfirskriftin að þessum girnilega kjúklingarétti. Allt inn í ofninn og síðan bara að hafa það kósí og njóta þess að finna matarilminn verða til smátt og smátt.

Það er sjálf Sirrý í Salt eldhúsi sem á þessa uppskrift sem jafnframt gæðatryggir hana í gegn en eins og flestir vita eldar Sirrý bara frábæran mat. 

Heimasíðu Sirrýar er hægt að nálgast HÉR.

Kjúklingarétturinn sem eldar sig sjálfur

  • 800-1000 g kjúklingabitar með skinni, gott er að nota leggi og efrilæri
  • 3-4 laukar, eftir stærð
  • 4 msk. tómatpúra
  • 3 msk. olía
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 msk. maple síróp (má sleppa ef vill)
  • sjávarsalt og nýmalaður pipar

Aðferð:

Hitið ofninn í 180°C. Setjið bökunarpappír í ofnskúffu. Þerrið kjúklingabitana með eldhúspappír og raðið í ofnskúffuna. Afhýðið laukinn og skerið í fjóra parta. Blandið tómatpúru, olíu, paprikudufti, sírópi salti og pipar í skál. Penslið kjúklingabitana á öllum hliðum með blöndunni. Raðið lauknum á milli kjúklingabitanna, dreypið örlítið af ólífuolíu yfir. Bakið í ofninum í 40 mínútur. Berið fram t.d. með hýðisgrjónum eða quinoa ásamt tamarisósu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert