Snilldarleiðir til að nota sítrónur

Súrar en sjúklega gagnlegar þegar kemur að þrifum.
Súrar en sjúklega gagnlegar þegar kemur að þrifum. mbl.is/Claudia Lommel / Stocksy United

Þarftu að fríska upp á eitthvað á heimilinu? Þá er sítrónan alltaf að fara að hjálpa þér. Hvort sem þú ert að brasa eitthvað í eldhúsinu eða jafnvel í þvottahúsinu þá er þessi súri ávöxtur þér innan handar.

  1. Fáðu potta og pönnur til að „shæna“ á ný. Skerðu hálfa sítrónu og stráðu yfir hana salti. Nuddaðu pottana þína með sítrónunni og skolaðu svo vel á eftir.
  2. Sítrónu með salti má einnig nota á marmara sem hefur fengið á sig bletti eftir kaffibollann. Nuddaðu létt, skolaðu og bletturinn er á bak og burt.
  3. Við eigum öll til einhver plastílát sem eru með föstum matarblettum eftir sterka tómatsósu eða álíka. Þá er ráð að fylla vaskinn af sjóðandi vatni með safa úr 2-3 sítrónum og leggja ílátið í bleyti í þrjá til fjóra tíma. Þvoið ílátið vel þar á eftir á venjulegan hátt.
  4. Settu einn bolla af nýkreistum sítrónusafa með í þvottavélina þegar þú vilt fríska upp á hvítan þvott. Eins getur þú lagt föt í bleyti yfir nótt með nokkrum sítrónusneiðum í sjóðandi vatni – það svínvirkar.
  5. Notið sítrónu til að hreinsa bakteríurestar í skurðarbrettum. Makið sítrónu á brettið og látið standa í 10 mínútur. Skolið og þurrkið vel á eftir.  
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert