Lambafile með ómótstæðilegu meðlæti

mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Lambakjöt stendur alltaf fyrir sínu og hér gefur að líta uppskrift sem vert er að prófa. Þetta er svoköllu öfug eldun sem er eiginlega bara fullkomlega rökrétt og frekar frábær. 

Það er enginn annar en Læknirinn í eldhúsinu sem á þessa uppskrift en matarbloggið hans er hægt að nálgast HÉR.

Dásamlegt öfugt eldað lambafile á salatbeði með bláberjum og sherrívinagrettu - og með cheddarostsgratíni

Í þessari uppskrift reyndi ég að herma eftir aðferð sem kallast "reverse sear". Þessi aðferð byggir á því að salta (marinera) kjötið fyrst í 30-60 mínútur. Þá má einnig líta á þetta sem þurran pækil (dry brine). Því næst er kjötið bakað í ofni við 100-110 gráður þangað til að vissu hitastigi er náð, oftast nokkrum gráðum undir því sem fólk óskar eftir. Í lokin er kjötið steikt á pönnu upp úr olíu eða smjöri til að brúna það fallega að utan. 

Og þó að maturinn hafi heppnast vel, þá fékk ég nokkrar athugasemdir - "hvar er sósan?" Hérna var vinagrettan látin duga. Og kjötið var það mjúkt að ekki þurfti á sósu að halda.

Fyrir sex 

  • 1400 g af lambafilé
  • 2-3 msk. góð jómfrúarolía
  • góð lambakryddblanda að eigin vali (þessi (Yfir holt og heiðar) gæti komið aftur á markað von bráðar). 
  • 1 msk. blóðberg
  • 1 msk. salt 
  • pipar eftir smekk. 
  • blandað salat (að sjálfsögðu íslenskt)
  • ⅛ haus rauðkál
  • handfylli ferskt bláber
  • ¼ agúrka
  • 1 box piccóló tómatar
  • handfylli ristaðar valhnetur
  • salt og pipar

Fyrir vinagrettuna

  • 4 msk. góð jómfrúarolía
  • 1 msk. sherrý edik
  • 1 msk. birkisíróp
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 hvítlauksrif
  • salt og pipar
  • 1 kg kartöflur
  • 400 ml. rjómi
  • 200 g cheddarostur
  • 2 hvítlauksrif
  • salt og pipar

Aðferð: 

  1. Það er gaman að segja frá því að kryddblandan sem ég bjó til, Yfir holt og heiðar, kemur aftur á markað, lítillega endurbætt, hjá Kryddhúsinu fljótlega. Þangað til má í raun nota hvaða kryddblöndu sem er - t.d. lambaveisluna frá Kryddhúsinu. Sú blanda er ágætur millileikur.  
  2. Ég byrjaði á því að nudda olíu, kryddi og svo salti inn í lambakjötið og leyfði því að standa í 30 mínútur.
  3. Á meðan var að huga að kartöflunum. Sneiddi þær eins þunnt og ég gat. Velti þeim upp úr smá hvítlauksolíu og raðaði í eldfast form. Saltaði og pipraði og hellti rjómanum yfir.
  4. Ég er hrifinn af þessum osti. Bæði er hann bragðgóður og bráðnar vel - en hann brúnast líka fallega í gratínum. 
  5. Verið rausnarleg með ostinn! Gratínið er svo bakað í ofni í klukkustund við 180 gráður. Það er ágætt að hafa álpappír yfir fyrstu þrjú korterinn eða svo, annars er hætt við því að osturinn brúnist um of.
  6. Það er svo í ljómandi lagi að láta gratínið standa úti á borði í 10 mínútur eða svo áður en maður gæðir sér á því. Allir vita hversu heitar kartöflur geta orðið.
  7. Svo var að gera vinagrettuna. Það er einfalt, bara blanda saman í skál og hræra vandl.ega saman.
  8. Ég notaði að sjálfsögðu íslenskt salat sem beð fyrir kjötið. 
  9. Þegar kjötið hafði náð 46 gráðum í kjarnhita var það tekið úr ofninum og steikt í smjöri og brúnað fallega að utan.
  10. Þá var það sneitt í heldur þunnar sneiðar og lagt ofan á salatbeðið ásamt þunnt skornu rauðkáli og kirsuberjatómötum.
  11. Ég þurrristaði handfylli af valhnetum og muldi yfir. 
  12. Til að setja punktinn yfir i-ið stráði ég handfylli af bláberjum og rifnu oregano yfir lambið og sáldraði svo vínagrettunni yfir. 
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert