Bragðmikil og einföld kjúklinga-quesadilla

mbl.is/Linda Ben

Einfalt og bragðmikið, meira þurfum við ekki til að kvöldmaturinn sé fullkomnaður. Þetta er réttur sem allir borða og hægt er að sérsníða hann að sérþörfum hvers og eins sé þess þörf.

Uppskriftin kemur úr smiðju Lindu Ben.

Bragðmikil og einföld kjúklinga-quesadilla

  • 2 eldaðar kjúklingabringur
  • 1 msk. ólífuolía
  • ½ rauðlaukur
  • 1 rauð paprika
  • 300 g gular baunir
  • 1-2 hvítlauksgeirar
  • U.þ.b. 1 msk. taco-kryddblanda
  • 4 stk. grófar stórar vefjur
  • 200 g rifinn pizza ostur
  • Habanero sýrður rjómi
  • Salsa sósa
  • Ferskt kóríander

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
  2. Byrjað er á því að skera grænmetið í strimla og steikja það á pönnu þar til það verður mjúkt og gott. Bætið því gulu baununum og rífið hvítlaukinn út á. Skerið kjúklinginn í strimla og bætið honum á pönnuna ásamt taco-kryddblöndunni.
  3. Rífið 2 stk. álpappír svo hægt sé að loka vefjunum inn í hann. Setjið eina vefju á álpappírinn, svo setjiði ¼ af rifna ostinum á eina vefju og helminginn af kjúklingafyllingunni, setjið ¼ af rifna ostinum yfir og leggið aðra vefju yfir. Endurtakið þetta skref svo úr verði tvær quesadilla. Lokið álpappírnum svo ekkert sjáist í vefjurnar. Setjið inn í ofn og bakið í u.þ.b. 15 mín.
  4. Takið út úr ofninum og færið úr álpappírnum og á skurðarbretti, skerið í 6 hluta eins og pizzu sneiðar. Berið fram með habanero sýrðum rjóma, salsa sósu og fersku kóríander.
mbl.is/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert