Súkkulaðibitakökur með grískri jógúrt

mbl.is/Linda Ben

Það er fátt betra á fögrum degi en nýbökuð súkkulaðibitakaka. Hvað þá ef hún inniheldur ekki alveg jafn mikinn sykur og maður á að venjast. Þessar dásemdarkökur koma úr smiðju Lindu Ben. og ættu því engan að svíkja.

Súkkulaðibitakökur

með grískri jógúrt

  • 1½ dl kókosolía
  • 2¼ dl púðursykur
  • 1 dl döðlusykur frá Rapunzel
  • 2 egg
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 5 dl hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. salt
  • 1 dl grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
  • 100 g hvítt súkkulaði
  • 100 g dökkt súkkulaði

Aðferð:

Hrærið saman sykur og kókosolíu, bætið svo einu eggi út í í einu og hrærið vel á milli. Bætið því næst vanilludropum út í.

Setjið hveiti, lyftidufti, salti saman við ásamt grískri jógúrt, blandið varlega saman við.

Skerið súkkulaðið niður í grófa bita og bætið úr í, blandið saman með sleikju.

Setjið deigið inn í ísskáp og kælið það í 2-3 tíma eða yfir nótt, eftir því hvað hentar best.

Kveikið á ofninum og stillið á 190°C. Notið matskeið til að skammta hverja köku, mótið kúlu með lófunum og raðið á smjörpappír, passið að hafa gott bil á milli þar sem kökurnar fletjast út í ofninum. Bakið í 10-12 mín.

mbl.is/Linda Ben
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert