Kjúklingaleggir að hætti Maríu Gomez

Ljósmynd/María Gomez

Meistari María Gomez á Paz.is á heiðurinn að þessari uppskrift sem kemur úr smiðju ömmu hennar á Spáni. Hún seir réttinn fremur einfaldan og afar barnvænan en hennar börn elski hann. Sósan sé mild en um leið bragðmikil. 

„Það er bilað gott að hafa með nýbakað baguette brauð til að dýfa ofan í sósuna en á Spáni segjum við Mojar el pan (lesist mohar el pan). Gott er að bera hann fram með fersku salati og steiktum kartöflum eða kartöflumús. Ef þið kjósið að hafa beinlaust kjöt mæli ég með að nota úrbeinuð læri í réttinn.“

Kjúklingaleggir í Salsa Sencilla Prenta

  • 1/2-1 dl olífuolía (skipt upp í tvennt, útskýrist á eftir)
  • 6-8 kjúklingaleggir eða 500 — 800 gr. úrbeinuð læri ca. 1 bakki
  • ½ dl fínt brauðrasp (ekki þetta appelsínugula grófa) ég notaði Euroshopper
  • 1 laukur
  • 4 hvítlauksrif eða einn til einn og hálfur geiralaus hvítlaukur
  • 2-3 gulrætur
  • Lúka af möndlum með hýðinu á
  • 2 kjúklingateningar
  • 400 — 600 ml soðið vatn
  • 2 tsk. paprikuduft
  • salt og pipar

AÐFERÐ

  1. Best er að gera réttinn á djúpri pönnu.
  2. Byrjið á að salta vel og pipra kjúklinginn.
  3. Takið næst raspinn og veltið kjúkling upp úr, bara velta létt upp úr þarf ekki að vera alveg þakinn.
  4. Hitið næst eins og helminginn af olíunni á pönnu og steikið kjúklinginn vel á alla kanta upp úr olíunni þar til hann verður fallega gylltur, hann þarf ekki að steikjast í gegn bara að raspið verði gyllt.
  5. Takið næst kjúklinginn af pönnunni og leggið til hliðar.
  6. Saxið lauk og merjið hvítlauk og skerið niður gulrót í þunnar skífur.
  7. Bætið nú hinum helmingnum af olíunni á pönnuna og mýkið laukinn ögn í olíunni
  8. Setjið svo gulrætur, hvítlauk og möndlur út á og saltið pínu og piprið og setjið paprikuduft út á.
  9. Steikjið í stutta stund og bætið þá við 400 ml (4 dl) af soðnu vatni út á og 2 kjúklingateninga. (Byrjið á 400 ml en ef sósan er of þykk bætið þá við allt upp að 600 ml.
  10. Sósan á að vera svona eins og á indverskum réttum).
  11. Látið sjóða í 10 mínútur undir loki.
  12. Takið af pönnuni og kælið í eins og 5 mín. eða þar til er aðeins búið að rjúka úr
  13. Setjið þá í blandara og maukið saman. Það er í lagi að það sé smá kekkjótt ekki mauka eins og barnamat.
  14. Setjið næst kjúklinginn á pönnuna og hellið sósunni úr blandaranum yfir.
  15. Passið að kjúklingurinn fari alveg á kaf í sósuna því hann þarf að soðna þar ofan í.
  16. Látið sjóða í eins 25 — 30 mínútur og hrærið reglulega í svo brenni ekki við botninn.
  17. Smakkið til og saltið meira ef þarf.

PUNKTAR

Það er mjög gott að hafa með nýbakað baguette-brauð til að dýfa ofan í sósuna. Ég kaupi oftast frosin snittubrauð frá merkinu la Baguette. Gott er að bera hann fram með fersku salati og steiktum kartöflum eða kartöflumús. Ef þið kjósið að hafa beinlaust kjöt mæli ég með að nota úrbeinuð læri í réttinn eða jafnvel bringur. Ef þið viljið stærri uppskrift þarf að tvöfalda hana.

Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert