Geggjaður spænskur saltfiskréttur

Ljósmynd/María Gomez

Góður saltfiskréttur er gulli betri eins og Miðjarðarhafsþjóðirnar vita og þessi réttur ætti að slá í gegn á hverju heimili enda algjörlega frábær. Það er engin önnur en María Gomez á Paz.is. sem á heiðurinn af þessum rétti sem hún segir kominn frá föðursystur sinni sem búi í Andorra.

„Oftar en ekki senda þær systur hans pabba mér matarmyndir þegar þær eru að elda. Þetta er ekki svona hefðbundinn íslenskur fiskréttur með osti ofan á eins og við hér á landi erum kannski vön að gera, heldur er uppistaðan í sósunni grænmeti.“

Bacalao con chanfaina spænskur saltfiskréttur

  • 700 gr. saltfiskhnakkar 
  • 1 dl hveiti 
  • 1 dl matarolía (til að steikja fiskinn) 
  • 2 grænar paprikur 
  • 2 rauðar paprikur 
  • 2 laukar 
  • 3 geiralausir hvítlaukar marðir 
  • 1 dós Hunts-tómatar með ristuðum hvítlauk (roasted garlic)
  • 2 msk. tómatpúrra 
  • 1 dl ólífuolía 
  • 2 msk. sæta (ég notaði agave-síróp) 
  • 1 fiskisoðteningur 
  • Ferk steinselja til skreytingar ef vill en má sleppa
  • 2 tsk. borðsalt 
  • svartur pipar 

Aðferð

  1. Skerið paprikur og laukana í ræmur (ekki litla bita heldur svona langsum í lengjur) 
  2. Merjið svo hvítlaukinn 
  3. Skerið saltfiskhnakkana í bita og setjið á eldhúsbréf til að ná mesta rakanum úr þeim
  4. Veltið saltfisknum svo upp úr hveiti og steikið með matarolíunni á pönnu (ekki salta fiskinn)
  5. Þegar hann er orðinn fallega gylltur báðum megin takið hann þá af og setjið til hliðar
  6. Næst er svo að þrífa pönnuna og setja ólífuolíuna á hana 
  7. Byrjið á að setja laukinn á pönnuna og saltið hann með hluta af saltinu af þessum 2 tsk. Standið alveg yfir honum og hrærið reglulega í meðan hann mýkist
  8. Þegar laukurinn er að verða alveg mjúkur setjið þá hvítlaukinn út á og hrærið reglulega í alveg þangað til allt er orðið vel mjúkt, hér verður að passa að laukar brenni ekki né verði dökkir 
  9. Næst er svo að taka laukinn af pönnunni og setja til hliðar svo hann brenni ekki
  10. Paprikurnar eru þá settar út á pönnuna í sömu olíuna og laukar voru í og saltaðar með hluta af saltinu. Steikið alveg þar til þær eru að verða vel mjúkar 
  11. Þá er Hunts-dósatómötum helt út á, ásamt tómatpúrru, agave og fisksoðteningnum og restinni af saltinu
  12. piprið vel með svörtum pipar og bætið lauknum út á og hrærið öllu vel saman 
  13. Náið upp suðu og látið sjóða alveg í 35-40 mín. undir loki og hrærið reglulega í á meðan
  14. Takið þá fiskinn og raðið varlega ofan á grænmetið og setjið sósu varlega á bitana 
  15. Leyfið svo að malla í 10 mín. til viðbótar 

Punktar

Best er að bera þennan rétt fram með góðu nýbökuðu snittubrauði og grænum ólífum með. Hér þarf að passa vel að fiskurinn nái að halda lögun sinni en verði ekki að plokkfiski ofan í sósunni, því er mikilvægt að hræra ekkert í réttinum eftir að fiskurinn er kominn út á, bara rétt setja smá sósu yfir bitana og leyfa þeim að hitna ofan í sósunni. Ef þið eruð ekki fyrir saltfisk má nota ýsu í staðinn eða jafnvel kjúkling.

Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert