Kransakökustafir eru það heitasta heitt

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Það heitasta heitt í veisluveitingum þessa dagana eru kransakökustafir. Bæði þykja kransakökurnar góðar og svo er stafurinn ágætis tilbreyting frá hinni hefðbundnu kransaköku sem tekur umtalsvert lengri tíma að gera. Ekki nóg með að kransakökustafirnir séu löðrandi í lekkerheitum þá eru þeir líka fáránlega flottir á veisluborðinu.

Það er auðvitað okkar eina sanna Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld. Það er enginn flinkari í veisluhaldi en Berglind og gaf hún fyrir skemmstu út Veislubókina sem er skotheldur leiðavísir að vel heppnuðu veisluhaldi sem við mælum með að allir eignist.

Bókin er á tilboði þessa daganaa á 2.990 krónur og hægt er að panta hana HÉR.

Berglind segist hafa fengið hugmyndina hjá 17 sortum og hún hafi ekki getað setið á sér að útbúa svona sjálf. „Ég hafði lengjurnar um 2 cm þykkar í þvermál og mældi 1 x 30 cm, 2 x 20 cm og 1 x 15 cm lengjur fyrir E. Síðan fyllti ég upp í bilið sem myndaðist með smá marsípani og þetta er í raun bara eins og að leira, þjappa og strjúka með fingrinum þar til marsípanið aðlagast og sléttist," segir Berglind og nú geta allir galdrað fram kransakökustaf eftir kúnstarinnar reglum.  

Kransakökustafur

Stafur

  • 750 g Odense Marcipan
  • 375 g sykur
  • 1 eggjahvíta
  1. Setjið marsípan og sykur saman í hrærivélina og hnoðið með K-inu þar til það fer að þéttast, bætið þá eggjahvítunni saman við og blandið áfram.
  2. Takið úr vélinni og hnoðið í höndunum þar til vel samlagað og þétt kúla hefur myndast.
  3. Plastið kúluna vel og kælið í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
  4. Skiptið marsípaninu til helminga (fyrir 2 eins stafi), rúllið út jafnar lengjur, um 2 cm í þvermál og þrýstið miðjunni aðeins upp með fingrunum til að mynda milt þríhyrningslaga form úr lengjunum.
  5. Teiknið staf á bökunarpappír x 2 og mótið lengjurnar eftir þeirri teikningu. Fyrir E mældi ég út 30 cm, 2 x 20 cm og 15 cm lengjur fyrir hvorn staf.
  6. Bakið við 200° í um 13 mínútur eða þar til hringirnir fara að dökkna.
  7. Kælið þá næst vel og sprautið síðan glassúr á þá, staflið þeim ofan á hvorn annan og skreytið með blómum, makkarónum eða öðru sem hugurinn girnist. Gott er að nota glassúrinn til að „líma“ skrautið á.

Glassúr

  • 1 eggjahvíta (40 g)
  • 200 g flórsykur
  • ½ tsk. sítrónusafi
  1. Setjið allt saman í hrærivélina og þeytið vel saman.
  2. Notið örmjóan hringlaga stút eða klippið lítið gat á sterkan poka og sprautið glassúr á annan stafinn, lyftið næsta upp á og endurtakið.
  3. Gott er að leyfa glassúrnum að harðna áður en hafist er handa við skreytinguna.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert