Dásamlegt osta lasagne sem gerir allt betra

Ljósmynd/MS

Hvað er betra en dásamlegt lasagne sem er svoleiðis sneysafullt af osti að sumum þykir nóg um?

Dásamlegt osta lasagne sem gerir allt betra

6 skammtar

  • Lasagnaplötur ferskar
  • 500 g nautahakk
  • 1 stk. laukur, saxaður
  • 4 stk. hvítlauksgeirar, pressaðir
  • 2 dósir hakkaðir tómatar
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 2 tsk. þurrkað óreganó
  • 2 tsk. þurrkuð basilika
  • 2 tsk. ítalskt pastakrydd
  • salt og pipar
  • 1 klípa íslenskt smjör
  • Rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
  • Rifinn gratínostur frá Gott í matinn
  • Raspaður Feykir (Goðdalir)
  • Piparostur frá MS (má sleppa)

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið á pönnu og steikið laukinn og hvítlaukinn þangað til að hann er aðeins búinn að taka sig.
  2. Takið af pönnunni og skiljið frá smjörinu.
  3. Þurrsteikið hakkið og kryddið með óreganó, basilíku, ítalska kryddinu, salti og pipar.
  4. Bætið lauknum út í og því næst tómatpúrrunni og hökkuðu tómötunum.
  5. Látið malla þangað til hakkið er alveg orðið eldað.
  6. Smakkið til og bætið við óreganó eða öðru kryddi eftir smekk.
  7. Þá er komið að samsetningunni.
  8. Byrjið á að setja hakksósuna í botninn á eldföstu formi. Leggið lasagnaplötur yfir og smyrjið þær með rjómaosti, eða slumpið yfir plöturnar. Endurtakið þetta en passið að eiga hakk fyrir efsta lagið.
  9. Dreifið rifnum Gratínosti yfir í lokin. Gott er að raspa Feyki eða rifinn piparost fyrir þau sem vilja fá sterkara bragð.
  10. Bakið í ofni við 180 gráður í ca. 45 mínútur.
  11. Ef þið getið stillt ykkur og beðið í um 10 mínútur eftir að þetta er tekið úr ofninum þá er mun auðveldara að skera í hæfilega skammta.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert