Briochekrans með pestó og truffluosti

Ljósmynd/Heiðdís Guðbjörg

Þessi briochekrans er með því fallegra sem við höfum séð en það er Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur & smjör sem á heiðurinn af þessari snilld.

„Briochedeigið er svo dásamlegt að því leyti að það er hægt að nota það í svo marga ólíka hluti. Ég bjó til deig án þess að vita nákvæmlega hvað ég ætlaði að gera við það daginn eftir. Ég endaði með því að baka þennan fallega krans og gerði síðan kanilsnúða úr hinum helmingnum. Hægt er að nota það í hamborgarabrauð, kleinuhringi og bara allt mögulegt, alveg dásamlegt!

En ég smakkaði um daginn enskan cheddarost með trufflum og hann hefur setið í mér síðan ég smakkaði hann. Svo þar sem ég átti leið í Costco varð ég að grípa hann með og gera eitthvað gott úr honum og úr varð að hann fékk að fylgja með í þennan briochekrans.

Í fyrsta sinn eftir að ég fór af stað með síðuna á ég ekki heiðurinn af myndunum en hann á hún Heiðdís Guðbjörg sem tók þessar fallegu myndir. Við tókum okkur saman á föstudagseftirmiðdegi og tókum helling af myndum saman, spjölluðum um matargerð, ljósmyndun og allt milli himins og jarðar – mjög kærkomin stund á covid-tímum."

Briochedeig

  • 2 egg
  • 50 g sykur
  • 1 tsk. salt
  • 240 ml mjólk
  • 12 g þurrger (1 pk)
  • 170 g smjör
  • 560 g hveiti

Aðferð:

  1. Hrærið saman egg, sykur og salt. Mælið mjólkina og hitið í örbylgjuofni eða í potti þangað til hún er orðin volg. Blandið gerinu við deigið ásamt mjólkinni og hrærið létt saman. Sama á við um smjörið, bræðið það og setjið út í deigið. Skiptið yfir í krók á vélinni.
  2. Vigtið hveitið saman við og hrærið því örlítið saman með króknum í höndunum, svo það fari ekki út um allt þegar þið setið hrærivélina af stað. Hrærið í góðar fimm mínútur og er eðlilegt að deigið klífi aðeins upp krókinn.
  3. Látið deigið í skál sem kemst inn í ísskápinn hjá ykkur og setjið plastfilmu þétt upp að deiginu. Leyfið að hefast í minnst 3 klst, gott er að gera það að kvöldi og leyfa því að hefast yfir nótt.

Fylling

  • 1 krukka rautt pestó
  • 100-150 g truffluostur (fæst í Costco)
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Hægt er að nota hvaða pestó sem ykkur langar, sama á við um ostinn. Ég átti þennan dásamlega enska cheddar með trufflum og notaði hér en leyfið hugarfluginu að ráða eða því sem til er í ísskápnum ykkar og prófið.

Samsetning

  1. Takið deigið úr kæli og setjið á hveitistráð borð. Fletjið það út líkt og þið séuð að útbúa snúða, gott að miða við 40×50 cm. Dreifið pestóinu og ostinum og kryddið létt með salti og pipri. Rúllið deiginu upp enn og aftur eins og þið væruð að útbúa snúða.
  2. Þá breytist tæknin, takið hníf og skerið rúlluna í tvennt – langsum. Snúið skurðinum upp og festið annan endann létt saman. Þá er það bara að rúlla þessum tveimur pörtum saman. Sem er gert með því að annar hlutinn er settur yfir hinn og svo hinn yfir hinn og koll af kolli (langavitleysan!)
  3. Þegar þið eruð komin á enda festið þið partana létt saman og mótið í hring. Færið deigið yfir á bökunarpappír og leyfið að hefast í 20 mín.
  4. Þá er gott að kveikja á ofninum á 180°C. Ég baka brauðið í potti svo það haldi betur fallegu lagi og gefi möguleika á því að setja lok á ef það byrjar að dökkna of snemma.
  5. Áður en brauðið er sett inn í ofn er það penslað með einu eggi og ekki sakar að strá smá salti yfir. Setjið brauðið í pott og inn í ofn og bakið í u.þ.b. 40 mín.
Ljósmynd/Heiðdís Guðbjörg
Ljósmynd/Heiðdís Guðbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert