VIPP kynnir fegursta eldhús allra tíma

Glæsilegt eldhús frá VIPP – en þessi nýja eining var …
Glæsilegt eldhús frá VIPP – en þessi nýja eining var að koma á markað. Mbl.is/VIPP

Hér er frétt sem fagurkerar landsins vilja ekki missa af, því danska hönnunarfyrirtækið VIPP var að senda frá sér nýtt eldhús sem á engan sinn líka.

Eldhúshönnun VIPP er hugsuð í einingum, þar sem notandinn getur raðað saman sínu draumaeldhúsi eftir þörfum og óskum. Fyrirtækið sendi frá sér sitt fyrsta eldhús fyrir örfáum árum og í dag hefur ný útgáfa litið dagsins ljós sem gerir mann hálforðlausan – enda handbragðið og fegurðin slík að engan lætur ósnortinn.

Nýja eldhúsið kallast V2, og ber í raun sömu grindina og fyrsta eldhúsið þeirra, V1, nema hér hefur dökkri eik verið bætt við á skápa og skúffur sem mætir marmara í borðplötu og færir okkur nær rótum danskrar menningar og alla leið til Japans – því einfaldleikinn og fagurfræðin mætast hér í stórkostlegri hönnun á skápaeiningum, ásamt eldhúseyju. Morten Bo Jensen yfirhönnuður hjá VIPP segir að efnisvalið sé eins og sinfónía, þar sem samspil á milli marmarans og dökku eikarinnar tóni einstaklega vel með álinu og hamraða glerinu sem finna má í innréttingunni.

Eldhúsin frá VIPP eru svo sannarlega eins og falleg mubla sem hægt er að dást að í tíma og ótíma, og ekki að ástæðulausu sem þau vekja athygli í öllum helstu húsbúnaðartímaritum heims. Hönnunin gefur ekkert eftir hvað varðar efnisval og hugað er að minnstu smáatriðum, því hér er aðeins notast við það besta. Þetta er ekki eldhús sem þú munt skipta út eftir ákveðinn tíma því það dugar þér ævina út og lengur ef því er að skipta. Eldhúsin frá VIPP fást í versluninni EPAL.

Skápahurðar með engum höldum, því hér um ræðir að „ýta …
Skápahurðar með engum höldum, því hér um ræðir að „ýta og smella“ til að opna og loka. Mbl.is/VIPP
Mbl.is/VIPP
Allar skúffur eru með góðu og haldgóðu gripi sem rennur …
Allar skúffur eru með góðu og haldgóðu gripi sem rennur þó mjúklega inn í innréttinguna og er því lítt sýnilegt. Mbl.is/VIPP
Glerhurðarnar sýna óbeint það sem leynist í skápunum, en innbyggð …
Glerhurðarnar sýna óbeint það sem leynist í skápunum, en innbyggð lýsing gefur hillunum enn meiri glæsileika. Mbl.is/VIPP
Mbl.is/VIPP
Mbl.is/VIPP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert