Svaðalegustu kjúklingavængir síðari ára

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Kjúklingavængir eru allgjör snilld og eiga alltaf vel við. Leyndarmálið á bak við góða kjúklingavængi er sósan og hér er útgáfa frá Berglindi Hreiðars á Gotteri.is sem ætti að gera alla snarbrjálaða.

„Ég er mikið fyrir stökka kjúklingavængi, hvort sem ég er að kaupa mér „Hot Wings“ á KFC, stökka BBQ vængi á Barion eða útbúa þá heima. Þessi uppskrift lukkaðist virkilega vel og þetta eru með bestu kjúklingavængjum sem ég hef smakkað. Þeir munu án efa verða útbúnir reglulega á þessu heimili á komandi árum, það nokkuð er víst.“

Asískir kjúklingavængir uppskrift

Kjúklingavængir

  • Um 1,2 kg kjúklingavængir (2 pakkar)
  • 2 msk. lyftiduft
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. cheyenne pipar
  • ½ tsk. pipar
  • Asísk sósa (sjá uppskrift)
  • Vorlaukur
  • Sesamfræ frá Til hamingju
Aðferð:
  1. Skerið vængina í sundur á liðamótunum svo þið endið með þrjá hluta, hendið minnsta hlutanum og raðið í ofnskúffu.
  2. Blandið saman lyftidufti og kryddum í skál og stráið yfir kjúklinginn á báðum hliðum svo hann hjúpist allur, gott er að nota lítið sigti.
  3. Raðið vængjunum þá á ofngrind (með skúffu undir) og bakið í 120°C heitum ofni í 25 mínútur, hækkið hitann í 220°C og bakið í aðrar 25 mínútur eða þar til vængirnir verða gylltir og stökkir. Gott er að útbúa sósuna á meðan.
  4. Takið úr ofninum, setjið bitana í skál, hellið sósunni yfir og vefjið saman við með sleif þar til allir bitar eru vel hjúpaðir.
  5. Færið yfir á disk/fat og skreytið með vorlauk og sesamfræjum.

Asísk sósa

  • 1 tsk. ólífuolía
  • 2 rifin hvítlauksrif
  • 4 msk. Kikkoman Teriyaki BBQ sósa með hunangi
  • 2 msk. Kikkoman Teriyaki sósa með hvítlauk
  • 5 msk. Kikkoman soyasósa
  • 7 msk. púðursykur
  • 1 tsk. lime safi
Aðferð:
  1. Setjið allt saman í pott, hitið að suðu og leyfið að sjóða saman í 5-8 mínútur.
  2. Þegar blandan fer aðeins að þykkna má hella henni yfir stökka vængina
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert