Var kasólétt þegar veitingastaðurinn opnaði

Hrefna Sætran.
Hrefna Sætran. SIGURDUR UNNAR RAGNARSSON

Einn ástsælasti og vinsælasti veitingastaður landsins, Grillmarkaðurinn, fangar tíu ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni verður slegið upp veglegri veislu alla vikuna með skemmtilegum uppákomum.

Afmælisvikan hefst formlega á morgun og stendur fram yfir helgi. Um helgina munu trúbadorar skemmta gestum og Aron Can á fimmtudagskvöldið. Útbúinn var sérstakur afmælismatseðill þar sem nokkrir gamlir vinsælir réttir líta aftur dagsins ljós. Að auki var bakarinn vinsæli, Gulli Arnar, fenginn til að búa til sérstakan afmæliseftirrétt í anda Grillmarkaðarins.

Að sögn Hrefnu Sætran hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því að Grillmarkaðurinn opnaði.

„Þessi 10 ár hafa flogið en eins og sagt er þá flýgur tíminn þegar það er gaman. Ég var einmitt ólétt af fyrra barninu mínu þegar við opnuðum Grillmarkaðinn og var hlaupandi þarna út um allt á fullu. Það er svakalega mikil vinna að opna veitingastað og ennþá meiri vinna að halda honum áfram góðum og ég held að okkur hafi tekist það ágætlega. Það er allavegna alveg brjálað að gera hjá okkur og gestirnir okkar svakalega ánægðir með matinn og þjónustuna. Fólk kemur til okkar af allskonar tilefni. Halda upp á afmæli, útskrift, stefnumót eða bara vinir að njóta saman svo það er alltaf stuð á Grillmarkaðnum. Við erum svakalega stolt af því að bjóða upp á hágæða íslenskt kjöt sem við leggjum mikla vinnu í að hafa. Það eru alls ekki allir staðir með íslenskt kjöt því það er dýrara og meiri vinna að nálgast það en við viljum kaupa íslenskt og styðja við bændur landsins. Það höfum við gert frá fyrsta degi og gerum enn í dag," segir Hrefna og nokkuð ljóst að mikil stemnging verður á Grillmarkaðinum næstu daga sem aðra daga.

Eftirrétturinn er sérhannaður af Gulla Arnar.
Eftirrétturinn er sérhannaður af Gulla Arnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert