Svakalegur sítrónukjúklingur

Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Hugmynd sem virkilega gengur í matarboð eða saumaklúbb. Allt eldað saman á einni, stórri pönnu og óþarfi á frekara meðlæti þótt brauðmeti henti með til að dífa í. Athugið að í uppskriftinni er notað orzo-pasta sem fæst orðið í mörgum verslunum. Í stað þess má nota annað smágert pasta, rísotto-grjón, blómkálshrísgrjón, kús-kús, perlubygg og annað sem hugurinn girnist.

Sítrónukjúklingur með Salatosti

Fyrir 6

Kjúklingur og marinering

  • 6 stk. kjúklingabringur
  • 2 msk. ólífuolía
  • 2 msk. dijon sinnep
  • 3 stk. hvítlauksrif, skorin í sneiðar
  • 2 stk. skalottlaukur
  • 2 msk. ferskt rósmarín, saxað
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • • salt og svartur pipar

Pasta

  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 stk. sítróna, skorin í sneiðar
  • 3 msk. smjör
  • 180 g orzo-pasta

Sósa

  • 7 dl kjúklingasoð
  • 200 g grænkál eða annað salat (t.d. spínatsalat), smátt skorið
  • 2 msk. sítrónusafi
  • salt og pipar
  • 1 krukka Dala salatostur í kryddolíu (325 g)

Meðlæti

  • gott brauð

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 220 gráður.
  2. Setjið allt hráefnið í skál (kjúklingur og marinering) og blandið vel.
  3. Gott að leyfa þessu að standa aðeins og marinerast. Má gera fyrirfram.
  4. Hitið 1 msk. af olíu á stórri pönnu á meðalhita.
  5. Setjið kjúklinginn á pönnuna ásamt marineringunni og steikið hann þar til hann fær á sig gylltan lit.
  6. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið á disk.
  7. Bætið olíu og smjöri á pönnuna.
  8. Leggið sítrónusneiðarnar á pönnuna og steikið aðeins á báðum hliðum.
  9. Takið sítrónuna af pönnunni og hrærið orzo saman við olíuna á pönnunni þannig að það steikist smá og verði þakið olíu.
  10. Hellið soði á pönnuna til að búa til sósuna og setjið salatið saman við ásamt sítrónusafa.
  11. Saltið og piprið blönduna eftir smekk. Komið upp suðu og hrærið vel.
  12. Setjið kjúklingabitana á pönnuna og leggið sítrónusneiðarnar yfir.
  13. Dreifið Salatostinum yfir allt að lokum.
  14. Setjið í heitan ofninn í um 15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
  15. Það má bera fram aukalega ostasósu með réttinum ef vilji er til.
  16. Þá er Salatostur ásamt grískri jógúrt, smá hvítlauk og sítrónusafa hrærður í blandara þar til sósan er silkimjúk og hún smökkuð til með salti og pipar.
  17. Að sjálfsögðu er svo gott að hafa brauð með réttinum til að dýfa í.

Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert