Húsráðin þrjú sem redda málunum!

Ljósmynd/Colourbox

Hér bjóðum við ykkur upp á einstakt (ef svo má að orði komast) húsráð sem snýr almennt að flíkum sem eru byrjaðar að hnökra.

Við rákumst á þetta húsráð hjá þrifekspertinum @mama_mila á TikTok, en hún er með puttann á púlsinum er kemur að góðum húsráðum, eins og svo margir aðrir á þeim fína samfélagsmiðli. Hún bendir okkur á að það má auðveldlega færa þau föt sem byrjuð eru að hnökra, í nýjan búning með einföldu ráði. Það má einfaldlega nota litlar rakvélar til að skafa allt hnökur af og flíkurnar verða nýjar á augabragði.

Sama ráð dugar auðvitað á öll efni og á dögunum gerðum við tilraun á dýnu sem farin var að hnökra illilega. Nokkrar mínútur með rakvél á henni gerðu kraftaverk og dýnan er eins og ný.

Að auki sýnir myndbandið hvernig hægt er að hvítta föt með því að nota töflur til þess að hvítta falskar tennur (hver man ekki eftir Corega auglýsingunum) og svo hvernig snjallt er að merkja lykla með naglalakki.

@mama_mila_ Which one will you try first? 🌻 #lifehacks #homehacks ♬ about damn time x promiscuous - Adam Wright
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert