Geggjaður kjúklingaréttur á korteri

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Indverskur matur þarf alls ekki að vera flókinn. Ef þig langar í ljúffengan og fljótlegan slíkan mat er þessi uppskrift alveg fullkomin!“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þennan snilldar rétt sem smellpassar á kvöldverðaborðið. „Hann rífur örlítið í en öll fjölskyldan elskaði hann, líka minnsta fimm ára skottan á heimilinu.“

Tikka Masala kjúlli á kortéri

Fyrir 4-6 manns

Tikka Masala kjúklingur

  • 900 g úrbeinuð kjúklingalæri
  • Bezt á kjúklinginn krydd
  • Bezt á allt (hvítlaukskrydd)
  • 500 ml rjómi
  • 700-800 ml vatn
  • 2 x Tikka Masala grýta frá TORO
  • Ólífuolía til steikingar

Aðferð:

  1. Skerið kjúklinginn í bita og steikið upp úr ólífuolíu og kryddum.
  2. Hellið rjóma og vatni á pönnuna með kjúklingnum og pískið Tikka Masala duftið saman við.
  3. Gott er að hella ekki öllu vatninu saman við í einu og bæta svo við eftir því hversu þykka þið viljið hafa sósuna.
  4. Berið fram með hrísgrjónum og naan brauði með smjöri ásamt ferskum kóríander.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert