Matarhátíðin Food & Fun hófst í gær með pompi og prakt en mikill fjöldi þekktra gestakokka er hingað mættur til þess að leika sér með íslensk hráefni sem blandað er listilega saman við þeirra eigin hefðir og hráefni.
Hátíðin stendur fram á laugardag og eru sælkerar og annað selskapsfólk hvatt til að nýta þetta frábæra tækifæri til að bragða á spennandi nýjungum og styðja um leið hátíðina sem setur óneitanlega mark sitt á íslenska matarmenningu.
Hér gefur að líta lista yfir veitingastaðina sem taka þátt og gestakokkana sem þar verða.
Allar borðabókanir fara fram í gegnum Dineout.
Josh Angus er yfirkokkur á hinum margverðlaunaða einnar Michelin stjörnu veitingastað Hide í London. Josh komið víða við á sínum ferli og unnið undir nokkrum bestu matreiðslumeisturum Bretlands. Af þeim má helst nefna, Le Manoir aux Quat’Saisons, Elystan Street og nú á Hide.
Ást Josh á ferðalögum og eldamennsku hefur fært honum hver ævintýrið á fætur öðru víðs vegar um heim allan. Á einum tímapunkti starfaði hann undir hinum virta matreiðslumeistara Shane Osborne í Hong Kong, og síðar meir í stöðu einkakokks bandaríska sendiherrans þar sem hann eldaði fyrir fjöldan allan af stórstjörnum og mikilmennum.
Undanfarin ár hefur Josh verið yfir eldhúsinu á Michelin stjörnu staðnum Hide þar sem hann fer fyrir teymi yfir 50 matreiðslumanna, sem elda ofan í allt að 400 gesti dag hvern.
Matseðill:
EIRIKSSON BRASSERIE
Amandine Chaignot er sannkölluð drottning í franskri matarmenningu. Eftir að hafa lokið námi við hinn virta Ferrandi matreiðsluskóla, starfaði Amandine undir mörgum þekktustu meisturum franskrar matargerðar og í matargerð hennar má greina þessi áhrif frá m.a. Mark Singer, Alain Ducass, Jean Francois Piege, Yannick Alleno, og Eric Frechon. Allar þessar goðsagnir skildu eitthvað eftir sig sem Amandine tók svo og þróaði áfram í sinn einstaka stíl sem hún þróar stöðugt enn þann dag í dag.
Matreiðslu Amandine er oft erfitt að lýsa, þó rætur hennar séu án efa sannarlega í Frakklandi. Réttir hennar bera oft keim af hvatvísi hennar og einlægni, en taka mið af hvaða umhverfi hún er í hverju sinni. Eitt sem breytist hinsvegar aldrei er hversu mikið hún gefur af sér í hvern einasta rétt sem hún ber fram, sem eru ávallt gerðir með mikilli ást.
Claus Henriksen sló eftirminnilega í gegn sem gestakokkur Dill í Norræna Húsinu á Food & Fun árið 2009. Claus hefur á sinn einstaka hátt náð að fullkomna tæknina við að sameina hefðbundna matreiðslu með framúrstefnulegu bragði, og hafa veitingastaðir undir hans stjórn dregið til sína fjölda viðurkenninga í gegnum tíðina. Hans nýjasta og núverandi verkefni er veitingastaðurinn MOTA í útjaðri Kaupmannahafnar, en sá staður fékk hina eftirsóttu Michelin stjörnu árið 2022 eftir að hafa einungis opnað 8 mánuðum áður. Nýverið var MOTA valinn veitingastaður ársins í Danmörku af hinu virta danska tímariti “Den Danske Spiseguide”. Verður hann okkar gestakokkur á Food & Fun 2023.
Matseðill:
Josh Katz er yfirkokkur og eigandi veitingastaðanna Berber & Q Grill House, Shawarma Bar og Carmel í London ásamt því að hafa gefið út tvær matreiðslubækur. Áður en hann opnaði Berber & Q árið 2015 starfaði Josh á nokkrum af bestu veitingastöðum London, m.a. Galvin Bistrot de Luxe, og Ottolenghi, áður en hann var gerður að yfirkokk á Made in Camden árið 2010. Undir stjórn Josh náði veitingastaðurinn í fjölda viðurkenninga og hæstu einkanna frá helstu miðlum Bretlands, ásamt því að fá hið eftirsótta Bib Gourmand frá Michelin Guide.
Bækurnar hans, Josh Katz’s Berber & Q; The Cookbook og Berber & Q; On Vegetables, hafa selst í fjölda eintaka víðsvegar um heim.
Matseðill:
Victor Planas gæti verið mörgum sólarþyrstum Íslendingur kunnugur, en hann er yfirkokkur og einn eigenda á einum besta veitingastað Tenerife, Kensei Contemporary Japanese á Hotel Bahía del Duque. Á Kensei fá gestir að njóta sérfræðikunnáttu Victor á japanskri matargerð í bland við sköpunargáfu innblásinni úr nærumhverfinu. Victor leggur mikla áherslu á að nota eingöngu besta hráefni sem völ er á þegar kemur að því að skapa rétti sem heiðra bæði hefðbundna og nýstárlega japanska matreiðslu.
Matseðill:
Jesper Krabbe er góðkunningi Food & Fun hátíðarinnar en þetta er þriðja sinn sem hann tekur þátt. Hann kom tvisvar sem aðstoðarkokkur Paul Cunningham af Henne Kirkeby Krå, og einu sinni á eigin vegum og stóð uppi sem Food & Fun kokkur ársins þá. Matseldin hans Jespers er létt og nútímaleg, þar sem einfaldleikinn ræður för, og mikið er lagt upp úr gæðahráefni úr nærumhverfi og kraftmiklum bragðsamsetningum
Food and Fun matseðillinn á Brút er samstarfsverkefni Jespers og Ragnars yfikokks á Brút sem er ekki síður þekktur fyrir skilning á bragðsamsetningum og hágæða hráefni úr okkar nærumhverfi.
Matseðill:
Nokx Majozi er sannkölluð stjarna á uppleið í veitingabransanum, og fékk það nýverið staðfest þegar hún var nefnd “Rising Star in the UK” af einum virtasta matarblaðamanni Bretlands. Nokx er yfirkokkur á “Pie Room” á hinum virta veitingastað Holborn Dining Room á Rosewood hótelinu í London.
Nokx ólst upp norðan af KwaZulu-Natal í Suður Afríku, og erfði ást sína á matseld að miklu leyti frá föður sínum sem kenndi henni listina af því að blanda saman mismunandi brögðum og leyfa sköpunargáfunni að ráða för í eldamennsku. Þrátt fyrir að hafa upprunalega ætlað að reyna fyrir sér sem næringarfræðingur, fann Nokx fyrir sinni sönnu köllun í eldhúsinu.
Matseðill:
Danny Mena er rómaður mexíkóskur matreiðslumaður búsettur í New York. Hann er einna þekktastur fyrir ósvikna og hefðbundna mexíkóska matargerð á veitingastöðum sínum Hecho en Dumbo og nú síðast á La Loncheria og Conejo, Eftir að hafa starfað á þekktu veitingastöðunum Blue Hill og The Modern, opnaði hann Hecho en Dumbo árið 2007 í Brooklyn.
Matseðill:
Matthew North er yfirkokkur og heilinn á bakvið hinn vinsæla veitingastað Hyde í miðborg Osló. Hyde fann sér samastað í húsnæði sem áður fyrr hýsti hinn sögufræga Pjoltergeist, en það má að vissu leyti segja að Hyde hafi runnið undan rifjum forrennara síns. Matthew vann einmitt lengi vel á Pjoltergeist undir leiðsögn Atla Más Yngvasonar, en þar fínpússaði hann hæfileika sína í eldhúsinu og í dag ber matreiðsla hans mikinn keim af umami, salti, fitu og kryddum sem dansa saman við háværa tónlistina á Hyde og skilja gesti eftir uppnumda og hungraða í meir.
Árið 2022 hreppti Hyde sína fyrstu Michelin stjörnu og undir handleiðslu Matthew má reikna fastlega með fleiri viðurkenningum á næstu árum.
Matseðill:
Jesse Miller er yfirkokkur á nýopnaða veitingastaðnum Pennyroyal Station í Mt. Ranier hverfi Washington D.C. Bakgrunnur hans er í listageiranum þar sem hann var á góðri leið að verða atvinnulistmálari þegar ástríðan á mat og lífið í eldhúsinu dró hann til sín. Síðan þá hefur listamaðurinn í honum fengið útrás í eldhúsinu þar sem hann var m.a. á bakvið hinn geysivinsæla veitingastað Bar Pilar í Washington D.C. Matreiðsla Jesse á Bar Pilar sækir innblástur frá nærliggjandi sveitum og borgum með áherslu á ferska, árstíða- og staðbundna vöru. Réttirnir eru einfaldir en jafnframt ævintýralegir og breytast í takt við framboðið hverju sinni, sem er einmitt hluti af ævintýrinu.
Matseðill:
Mikael Mihailov, oft kallaður Miska af þeim sem þekkja hann, er matreiðslumeistari frá Finnlandi með alþjóðlegan bakgrunn. Með reynslu í farteskinu frá heimsþekktum veitingastöðum líkt og Eleven Madison Park í New York hefur Miska þróað sinn einstaka stíl og er nú yfirkokkur yfir tilraunaeldhúsi PNM Gourmet í Helsinki. Hann er þekktur fyrir að blanda saman brögðum víðs vegar að úr heiminum og ber matreiðsla hans keim af sígildri franskri matargerð ásamt nýstárlegum hughrifum frá bæði Asíu og Mexíkó. Miska hefur þó nokkrum sinnum tekið þátt í Food and Art Festival í Finnlandi og tvisvar sinnum verið keppandi í S. Pellegrino ungkokkakeppninni. Að lokum er vert að nefna að Miska er ómissandi fyrir alla þá sem elska kavíar, en hann er sérlegur sendiherra fyrir Petrossian kavíar.
Matseðill:
Matteo Cameli er eins ítalskur og þeir gerast. Í smábænum Portico di Romagna, rekur hann, ásamt fjölskyldu sinni, veitingastaðinn Al Vecchio Convento þar sem höfuðáhersla er á klassíska ítalska matargerð og hráefni úr nærumhverfinu. Eftir að hafa unnið á nokkrum af bestu veitingastöðum Skandinavíu, m.a. Noma og Frantzén, sneri Matteo aftur á heimaslóðirnar með nýstárlegar aðferðir og tækni sem blandar saman því besta úr ítalskri matargerð og innblástri frá Michelin stjörnu eldhúsunum sem hann starfaði á. Árla morgna eru allar líkur á að maður finni Matteo djúpt inn í skógum Emilia Romagna á truffluveiðum ásamt hundunum sínum.
Matseðill:
Diego Muñoz er einn af mest spennandi matreiðslumeisturum Latín Ameríku og hefur komið víða við á sínum ferli. Diego hefur ávallt lagt mikla áherslu á að vera skapandi í sinni matargerð, ásamt því að nýta sem mest þau einstöku hráefni sem finnast í nærumhverfinu hverju sinni. Diego er sannur sendiherra Perúvískar og Latín amerískrar matargerðar og hefur tekið virkan þátt í að koma þeirri matargerð á heimskortið.
Matseðill: