Kokkalandsliðið stefnir á verðlaunasæti og gefur ekkert eftir

Íslenska kokkalandsliðið er glæsilegur hópur af einstaklingum sem hafa allir …
Íslenska kokkalandsliðið er glæsilegur hópur af einstaklingum sem hafa allir skarað framúr á sínum sviði. Ljósmynd/Ruth Ásgeirsdóttir

Allir fremstu matreiðslumenn heims koma saman á Ólympíuleikum matreiðslu í Stuttgart í Þýskalandi í byrjun febrúar 2024 og keppa um stærstu verðlaun keppnismatreiðslu. Eins og fram hefur komið á matarvef mbl.is hefur íslenska kokkalandsliðið hefur æft stíft undanfarna mánuði í tengslum við keppni þessa og stefnir á verðlaunapall. Ólympíuleikarnir verða settir 3. febrúar nk. og mun íslenska kokkalandsliðið keppa í tveimur greinum. Fyrri keppnisgreinin er „Chef´s table“, tólf manna 11 rétta matseðill og í hinni síðari þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Tilbúinn að leggja mikið á sig til að ná árangri

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari segir ekkert annað en verðlaunasæti koma til greina. Hópurinn samanstandi af reynslumiklu keppnisfólki sem og einstaklingum sem eru að fara að keppa á sínu fyrsta stórmóti. Snædís hefur lengi verið tengd keppnismatreiðslu en hún tók að sér þjálfun liðsins fyrr á þessu ári.  „Við ætlum okkur alla leið, þessi hópur er tilbúinn að leggja gríðarlega mikið á sig til að ná sem bestum árangri,“ segir Snædís og bendir á að æfingar fari fram aðra hverja viku, þrjá til fjóra daga í senn þar sem hver æfing er um tíu til fjórtán klukkustundir.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Ion Adventure er þjálfarinn …
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Ion Adventure er þjálfarinn íslenska kokkalandsliðsins og er einnig mikill reynslubolti í faginu en ásamt því að þjálfa landsliðið hefur hún verið tengd landsliðinu síðan 2016 og var í landsliðshópnum sem náði þriðja sæti á síðustu Ólympíuleikum Ljósmynd/Ruth Ásgeirsdóttir

Glæsilegur hópur af framúrskarandi einstaklingum

Hópurinn sem fer til Stuttgart er jafnframt leiddur af Ísaki Aroni Jóhannssyni fyrirliða en hann starfar hjá Zak veitingum og hefur mikla keppnisreynslu. Hann hefur verið í landsliðshópnum síðan 2019.  Hann bar sigur úr býtum í keppninni um eftirrétt ársins 2022 og varð í fjórða sæti í keppninni um kokk ársins sama ár.

Aðrir í hópnum eru eftirfarandi:

  • Hugi Rafn Stefánsson, sjálfstætt starfandi, hefur staðið uppi sem sigurvegari í Íslensku nemakeppninni í matreiðslu og verið aðstoðarmaður í Bocuse´dor keppninni.
  • Úlfar Örn Úlfarsson, sjálfstætt starfandi, hefur keppt í keppninni um Eftirréttur ársins og verið í Bocude´dor teyminu.
  • Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir, Fjallkonunni, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og verið í kokklandsliðinu síðan 2021.
  • Gabríel Kristinn Bjarnason, Dill, sigraði keppninna Nordic Young Chef 2021 hefur náð þriðja sæti í keppninni um Kokkur ársins og unnið Íslensku nemakeppnina ásamt því að vera aðstoðarmaður í Bocuse´dor.
  • Kristín Birta Ólafsdóttir, Hótel Reykjavík Grand, fyrrum sigurvegari í Íslensku nemakeppninni og tekið þátt í keppninni um Eftirréttur ársins ásamt því að lenda í þriðja sæti á Íslandsmóti iðngreina.
  • Jafet Bergmann Viðarsson, Torfús Retreat, hefur tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins og Matreiðslunemi ársins.
  • Bjarki Snær Þorsteinsson, Lux veitingar, hefur tekið þátt í keppnunum um eftirrétt ársins, Matreiðslunemi ársins og Nordic Green Chef.
  • Ólöf Ólafsdóttir Head pastry chef  Monkeys, vann í keppninni um eftirrétt ársins 2021
  • María Shramko, Bakarameistaranum, er reynslubolti í keppnismatreiðslu en hún hefur unnið til fleiri en hundrað verðlauna á stórmótum og er viðurkenndur dómari.
  • Snædís Xyza Mae Jónsdóttir yfirkokkur á Ion Adventure er þjálfarinn íslenska kokkalandsliðsins og er einnig mikill reynslubolti í faginu en ásamt því að þjálfa landsliðið hefur hún verið tengd landsliðinu síðan 2016 og var í landsliðshópnum sem náði þriðja sæti á síðustu Ólympíuleikum, ásamt því meðal annars að keppa í Kokkur ársins, standa uppi sem sigurvegari í Eftirréttur ársins 2018 og vinna Artic Chef keppnina á Akureyri á þessu ári.
Ísak Aron Jóhannsson er fyrirliði liðsins en hann starfar hjá …
Ísak Aron Jóhannsson er fyrirliði liðsins en hann starfar hjá Zak veitingum og hefur mikla keppnisreynslu. Hann hefur verið í landsliðshópnum síðan 2019. Hann bar sigur úr býtum í keppninni um eftirrétt ársins 2022 og varð í fjórða sæti í keppninni um kokk ársins sama ár. Ljósmyndari/Ruth Ásgeirsdóttir

Ekki hægt án stuðnings bakhjarla og styrktaraðila

Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara, sem á og rekur kokkalandsliðið, segir að miklar væntingar séu gerðar til hópsins. „Hópurinn samanstendur af hæfileikaríku matreiðslufólki með frábæran þjálfara, sem á eftir að ná langt,“ segir Þórir og bætir við að ótrúlegt sé að fylgjast með eljunni og metnaði allra sem að koma, þar sem takmarkið sé að ná á verðlaunapall. „Að vera með landslið sem aftur og aftur sannar sig í að vera meðal þeirra bestu væri ekki hægt nema fyrir frábæran stuðning bakhjarla og styrktaraðila, þeir gera okkur þetta kleift,“ segir Þórir um leið og hann þakkar öllum þeim sem koma að starfi kokkalandsliðsins fyrir þeirra framlag.

Hluti hópsins pósar fyrir ljósmyndarann fyrir myndatökuna.
Hluti hópsins pósar fyrir ljósmyndarann fyrir myndatökuna. Ljósmynd/Ruth Ásgeirsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka